Körfubolti

Körfuboltakvöld um Grindavík: „Ég skil ekkert í þessu“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Domino’s Körfuboltakvöld var á sínum á föstudagskvöldið en þar var gerð upp síðasta umferð í bæði Dominos-deild karla og kvenna.

Grindavík steinlá fyrir grönnum sínum í Keflavík á föstudagskvöldið en ekki stóð steinn yfir steini í leik þeirra gulklæddu á föstudagskvöldið.

Teitur Örlygsson og Hermann Hauksson, spekingar þáttarins, ræddu við stjórnandann Kjartan Atla Kjartansson um krísuna í Grindavík.

„Ég skil ekkert í þessu,“ sagði Teitur Örlygsson, annar spekingur þáttarins, aðspurður út í ummæli Jóhanns Ólafssonar, þjálfara Grindavíkur, í leikslok.

„Þetta eru líka svo léleg skot. Þeir eru með mann á kafi í andlitinu á þér í öllum skotunum. Þetta er ekkert flæði og verið að opna fyrir menn.“

Allt innslagið má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×