Þyrla eiganda Leicester brotlenti fyrir utan leikvang liðsins Anton Ingi Leifsson og Atli Ísleifsson skrifar 27. október 2018 20:14 Myndin er frá því fyrr á leiktíðinni. vísir/getty
Þyrla eiganda Leicester, Vichai Srivaddhanaprabha, brotlenti fyrir utan leikvang liðsins, King Power Stadium, eftir leik Leicester City gegn West Ham United í kvöld. Ekki liggur fyrir hve margir hafi verið um borð í þyrlunni eða hvort Srivaddhanaprabha hafi verið einn þeirra. Af myndböndum að dæma var viðbúnaðarstig hátt í kringum leikvanginn en mikill eldur blossaði upp þegar þyrlan skall til jarðar. Í frétt Guardian segir að óstaðfestar fréttir hermi að Srivaddhanaprabha hafi verið um borð. Þetta segir sömuleiðis Ben Jacobs, blaðamaður ESPN, eftir að hafa rætt við fulltrúa fyrirtæksins King Power. Sjónarvottar segjast hafa séð Kasper Schmeichel, markmann félagsins, hlaupa í átt að þyrlunni þegar slysið varð.Spoken to King Power, who will release a statement tomorrow. #LCFC owner Vichai Srivaddhanaprabha was on-board the eight-seater helicopter to London. Failure, upon take off, resulted in a fire prior to a crash in the car park. No news on casualties. Prayers with #LCFC family— Ben Jacobs (@JacobsBen) October 27, 2018 Leicester gerði 1-1 jafntefli við West Ham á heimavelli í kvöld. Í yfirlýsingu frá lögreglunni í Leicester segir að verið sé að vinna úr atviki sem hafi komið upp rétt fyrir utan leikvanginn um klukkan 20:30 að staðartíma, um klukkustund eftir leikslok. Þyrlan á að hafa brotlent á bílastæðinu fyrir utan leikvanginn. Í frétt BBC er haft eftir sjónarvottum að þyrlan hafi hrapað til jarðar „líkt og steinn“. Srivaddhanaprabha ferðast með þyrlu til og frá leikjum Leicester en eftir þá leiki sem Leicester spilar á heimavelli fer Srivaddhanaprabha upp í þyrluna á miðjum leikvanginum. Sky Sports segir frá því að Aiyawatt Srivaddhanaprabha, varaformaður stjórnar og sonur Vichai, hafi ekki verið um borð í þyrlunni. Sömu sögu sé að segja af John Rudkin, yfirmanni knattspyrnumála hjá Leicester City.Vichai Srivaddhanaprabha.EPAKeypti félagið 2010 Srivaddhanaprabha er eigandi ferðafyrirtæksins King Power og keypti Leicester árið 2010 og gerðist í kjölfarið stjórnarformaður félagsins. Leicester vann óvænt Englandsmeistaratitilinn tímabilið 2015-16 undir stjórn Ítalans Claudio Ranieri. Frakkinn Claude Puel er núverandi knattspyrnustjóri félagsins.Fréttin hefur verið uppfærð.Þyrla eiganda Leicester á miðjum King Power vellinum.GettyHelicopter crash looks horrendous. Not sure yet if any, or how many casualties. Thoughts with everyone concerned. https://t.co/wtQ8jGMuUE— Gary Lineker (@GaryLineker) October 27, 2018 Just hearing Leicester's owners helicopter crashed hope everyone is ok — Emile Heskey (@EmileHeskeyUK) October 27, 2018 My God.. this Leicester City helicopter crash scene is horrific. pic.twitter.com/Gb7EJwlDB8— Piers Morgan (@piersmorgan) October 27, 2018 My thoughts and prayers are with all those involved in the helicopter accident at Leicester City. — Pablo Zabaleta (@pablo_zabaleta) October 27, 2018 Thoughts & prayers for everyone concerned in Leicester helicopter crash... very sad and frightening..— Benjamin Mendy (@benmendy23) October 27, 2018 — Harry Maguire (@HarryMaguire93) October 27, 2018 — Ndidi Wilfred (@Ndidi25) October 27, 2018 — Jamie Vardy (@vardy7) October 27, 2018 #leicester— Riyad Mahrez (@Mahrez22) October 27, 2018 Thoughts from all at the Premier League are with everyone affected by tonight's incident at @LCFC— Premier League (@premierleague) October 27, 2018
Bretland Fótbolti Mest lesið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti FIFA heldur settri stefnu Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Franco Baresi er látinn Fótbolti Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Fótbolti Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Enski boltinn Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Enski boltinn Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Fleiri fréttir Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Sjá meira