Lífið

Keypti 200 sæti í fremstu röð á tónleika Ja Rule eingöngu til að skilja þau eftir auð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skjáskot af Instagram-færslu 50 Cent. Rapparinn hefur skeytt sjálfum sér inn á myndina og ímyndar sér að svona muni áhorfendaskarinn þann 9. nóvember næstkomandi líta út.
Skjáskot af Instagram-færslu 50 Cent. Rapparinn hefur skeytt sjálfum sér inn á myndina og ímyndar sér að svona muni áhorfendaskarinn þann 9. nóvember næstkomandi líta út. Skjáskot/Instagram
Bandaríski rapparinn 50 Cent segist hafa fest kaup á tvö hundruð bestu sætunum á tónleika rapparans Ja Rule, eingöngu til þess að sætin yrðu auð á tónleikunum. Rappararnir hafa lengi eldað grátt silfur saman og virðist 50 Cent staðráðinn í því að halda lífi í erjum þeirra á milli.

50 Cent greindi frá þessu í nokkuð meinfýsnum athugasemdum á Instagram. „Ég var að kaupa 200 sæti í fremstu röðum svo þau verði tóm. LOL,“ skrifaði rapparinn, og viðurkenndi jafnframt að fólki þætti hann andstyggilegur.

 
 
 
View this post on Instagram
#50cent bought a whole bunch of #jarule tickets on Groupon

A post shared by DJ Akademiks (@akadmiks) on Oct 26, 2018 at 9:29am PDT

50 Cent hefur því þurft að punga út um þrjú þúsund Bandaríkjadölum, eða um 360 þúsund íslenskum krónum á núverandi gengi, fyrir miðana sem kosta 15 dali stykkið. Tónleikarnir verða haldnir þann 9. nóvember næstkomandi.

Í kjölfar kaupanna, sem þó hafa ekki fengist staðfest, hefur 50 Cent birt myndir úr áhorfendaskara væntanlegra tónleika Ja Rule. Glöggir sjá að átt hefur verið við myndirnar en ljóst er að rapparanum er afar skemmt yfir uppátækinu. Ja Rule hefur ekki tjáð sig um málið að svo stöddu.

 
 
 
View this post on Instagram
What a show, I mean just fucking great. Do it againmy kid went to the restroom. LOL #bellator #lecheminduroi

A post shared by 50 Cent (@50cent) on Oct 26, 2018 at 10:57pm PDT

50 Cent hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum síðustu misseri og virðist leitast við að hneyksla netverja með uppátækjum sínum. Hann var til að mynda gagnrýndur fyrir að gera grín að leikaranum Terry Crews þegar sá síðarnefndi greindi frá kynferðisofbeldi sem hann hafði orðið fyrir. Þá bauð hann nýlega UFC-bardagakappanum Khabib Nurmagomedov tvær milljónir Bandaríkjadala fyrir að segja skilið við UFC.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.