Hugsjónir, lífsgleði og amma
Áður en ég fullyrði, af sjónarhóli manns sem lítur ennþá á sig sem ungan (þótt hann sé það ekki), að þessi sjónarmið séu beinlínis röng, vil ég segja þetta: Mikið ofsalega hlýtur að vera leiðinlegt að verða gamall og líða svona. Að hafa litla sem enga trú á samtíma sínum. Að halda að hápunktur sögunnar hafi átt sér stað fyrir fimmtíu árum og ekkert merkilegt hafi gerst síðan þá.
Ég hugsa stundum um ömmu mína þegar svona forpokuð sjónarmið eru annars vegar. Amma mín hafði sífelldan og einlægan áhuga á umhverfi sínu, öðru fólki, fréttum, stjórnmálum, lífinu. Þegar hún var 95 ára dró hún mig á tónleika með Björk í Laugardalshöll, á sama tíma og hinir sjötugu, aðallega, voru að rembast við að semja brandara um Björk og að röddin hennar væri eins og kattarbreim. Á dánarbeðinum spurði amma hjúkrunarkonurnar spjörunum úr. Hún þurfti að vita hvaðan þær væru, hvar þær stæðu í pólitíkinni og hvort þær ættu börn og maka. Amma hlustaði á Útvarp Sögu á hverjum degi fram undir það síðasta og komst að þeirri undraverðu niðurstöðu að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Mér hefur alltaf fundist það ótrúlegt dæmi um sigur mannsandans.
Forvitnin
Forvitnin og löngunin til þess að skilja samtímann gerði það að verkum að amma Hlíf varð 106 ára gömul. Hún var södd lífdaga í lokin. En forvitnisblikið var samt enn í augunum. Á dánarbeðinum sagði hún mér að þó svo hún væri reiðubúin að deyja, þá langaði hana samt svolítið að vita hvernig næstu kosningar færu. Vinnur íhaldið á? Tapar Samfylkingin? Hvað með nýju framboðin? Sjálf fór amma í framboð í Reykjavík norður þegar hún var 104 ára.
Það er ómetanlegt fyrir mann í lífinu að eiga sér svona fyrirmynd og leiðarljós. Tilhneigingin til tuðs og bölmóðs er alltaf til staðar. Það er hins vegar talsvert miklu meira gefandi, þótt það sé erfiðara, að reyna að skilja samtíma sinn frekar en að dæma hann. Að viðhalda forvitninni og áhuganum. Fari ég einhvern tímann á þann stað í lífinu að ég lýsi því yfir í heyranda hljóði – hvað þá í blaðagrein – að allt þetta unga fólk skilji ekki hugsjónir og sé sama um allt, þá má fara með mig tuldrandi upp á heiði og hlekkja við grjót. Í náttfötunum. Ekki með síma.
Hugsjónalausu málin
Nokkur pólitísk stefnumál hafa á undanförnum árum orðið mönnunum tilefni til þess að fullyrða að aðrir hafi engar hugsjónir. Það að einhver vilji breyta klukkunni og samræma hana sólargangi er haft til marks um gríðarlegt hugsjónaleysi. Að einhver vilji innleiða frelsi í nafngiftum er talið annað slíkt dæmi. Að vilja áfengi í kjörbúðir er hugsjónaleysi af verstu sort. Að telja það allt í lagi að hótel rísi í miðbænum, jafnvel á Landssímareitnum, er ekki bara talið hugsjónaleysi heldur beinlínis árás á menningu þjóðarinnar. Allt fólk sem aðhyllist svona lagað, og vill kannski þar að auki færa Reykjavíkurflugvöll og ganga í Evrópusambandið, er grandvaralaus skríll sem hefur aldrei barist við lögguna né heldur skilið fullveldið.
Hér lýsi ég tilfinningu. Ég skynja sterkt þessa víbra. Ákveðnar skoðanir eru hafðar til marks um ekkert vit sé lengur í pólitíkinni. Fólki er bara sama um allt. Það vill að fólk fái að skíra börnin sín Niðursuðudós. Ef ég hef rétt fyrir mér, má ég þá frekar biðja um hitt: Að reynt sé að skilja hver hugsjónin er að baki hverju stefnumáli. Að baki umræðunni um að breyta klukkunni býr löngun til þess að þjóðfélaginu sé hagað í samræmi við bestu þekkingu á lýðheilsu. Að röng klukka hafi áhrif á líðan, einkum ungs fólks, er kenning sem nýverið hlaut Nóbelsverðlaun. Og frelsið til að fá að gefa barni sínu nafn að eigin vali, hvernig er það ekki hugsjón? Barátta gegn forræðishyggju, fyrir því að fólki sé treyst, er einhver hugsjónaþrungnasta barátta sem til er.
Þannig má þræða sig í gegnum skoðanirnar, eina af annarri, og reyna að skilja þær allar.
Ef maður gerir það, þá verður maður 106 ára og deyr glaður.
Skoðun
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Val Vigdísar
Skúli Ólafsson skrifar
Friður á jörðu
Þröstur Friðfinnsson skrifar
Af hverju eru kennarar að fara í verkfall?
Anton Már Gylfason skrifar
Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Gróa Jóhannsdóttir skrifar
Gaza getur ekki beðið lengur
Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar
Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar
SVEIT – Kastið inn handklæðinu
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Skjáfíkn - vísindi eða trú?
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Evrópusambandið eða nasismi
Snorri Másson skrifar
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað
Andri Þorvarðarson skrifar
Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi
Sæunn Kjartansdóttir skrifar
Listin að styðja en ekki stýra
Árni Sigurðsson skrifar
Með vægi í samræmi við það
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
Hugvíkkandi efni: Forvitni umfram dómhörku
Bergsveinn Ólafsson skrifar
Velferðartækni er það lykillinn að sjálfbærara heilbrigðiskerfi?
Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Hindrum fleiri græn gímöld með einföldun regluverks
Ásta Logadóttir,Trausti Björgvinsson skrifar
Vegna FB færslu Kristins Hrafnssonar: Misskilningur um endurgreiðslukerfi kvikmynda
Ólafur William Hand skrifar
Hvernig tölum við um mat í kringum börnin okkar?
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir skrifar
Fangelsismál - Sparnaður og endurhæfing
Ólafur Ágúst Hraundal skrifar
Syndaaflausnin er svo að við ætlum að læra af þessu „á ykkar kostnað“
Davíð Bergmann skrifar
Tvær þjóðir í sama landi
Einar Helgason skrifar
Henta vísindin bara þegar þau styðja skoðanir okkar?
Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Hlutverk markmiða er að umbreyta okkur
Árni Sigurðsson skrifar
Líknarslæving við lífslok er umdeild meðferð
Ingrid Kuhlman skrifar
Óáreiðanlegar mælingar og misvísandi fréttir
Sigurjón Arnórsson skrifar
Unga fólkið okkar og samfélagsmiðlar
Fjóla Einarsdóttir skrifar
Hvað segir Morgunblaðið nú um stöðu litlu ríkjanna í ESB?
Ole Anton Bieltvedt skrifar
Það er ekki eitt, það er allt
Diljá Matthíasardóttir skrifar
Skilyrt loforð
Þorsteinn Sæmundsson skrifar