Veiði

Úr 193 löxum í hátt í 900 milli ára

Karl Lúðvíksson skrifar
Núna eru lokatölur komnar inn úr flestum laxveiðiánum nema þeim sem byggja veiðina á seiðasleppingum.

Það er nokkuð áhugavert að skoða þessar tölur og sjá hvernig sumarið kemur út í ánum.  Það liggur fyrir að veiðin á norðurlandi er langt undir meðaltali nema þá í Miðfjarðará en þar munar engu að síður um 1.000 löxum á milli ára.  Við eigum eftir að grúska meira í veiðitölum næstu daga og draga fram það sem okkur þykir áhugavert.

Eitt af því sem sem Veiðivísir telur nokkuð sérstakt og gaman að segja frá er munur á veiðitölum milli ára í Affallinu.  Veiðin í fyrra var ekki nema 193 laxar sem er lélegasta veiðin frá 2010 en það ár veiddust til að mynda 1.021 lax.  Veiðin í sumar hefur aftur á móti verið afbragðsgóð og þegar þetta er skrifað er Affallið líklega að detta í 900 laxa og það á ennþá eftir að veiða í tæpar tvær vikur og það er, að sögn þeirra sem hafa verið við ána nýverið, nóg af laxi í ánni en hann er farinn að safnast saman við þrjá til fjóra veiðistaði að mestu en lax má þó finna í flestum hyljum ofan við veiðistaði 4 og 5.  Það þarf bara nokkra daga af jafnri veiði til að lyfta ánni upp í 1.000 og miðað við hlýnandi spá næstu daga er það bara ekkert óhugsandi að Affallið nái þeirri tölu.






×