Á henni eru tvö lög: Fuðri upp (GOGO) og Reykjavík en bæði eru þau popplög í anda þess sem má finna á sólóplötunni Litlir svartir strákar sem kom út í vor við gífurlegar vinsældir.
„Ég er dálítið að spila á gítar í þessum lögum. Við vorum að gera stúdíóið okkar allt upp og rýmið er núna svo vel sett upp að það er þægilegt að grípa í gítarinn. Ég byrjaði í framhaldinu að semja svolítið á hann – en á sama tíma er þetta í stíl við það sem ég hef verið að gera.“
Blaðamaður spyr hvort Loga hafi fundist vanta smá rokkara í músíkina og þess vegna hafi hann skutlað nokkrum rokkuðum riffum inn í þessi nýju lög.
„Það er mjög mikilvægt að geta rokkað – það vantaði algjörlega smá rokk og ról í þetta. Svo er líka mikill gítar til að mynda í nýju Kanye West-lögunum, sérstaklega í lögunum hans með Kid Cudi – þetta er rosa mikið rokk.“

Litlir svartir strákar varð eins og fyrr segir gífurlega vinsæl og má alveg segja að hún sé ein stærsta poppplata sem komið hefur út á þessu ári. Logi hefur auðvitað getið sér orð „bak við tjöldin“ – hann hefur verið að semja og pródúsera fyrir aðra vinsæla poppara þessa lands en hvernig er það núna að stíga fram fyrir tjöldin og standa svona fremst á sviðinu?
„Platan varð vinsæl og það var ótrúlega gaman að fá að upplifa það að gefa út plötu og verða „talk of the town“. Ég er svo þakklátur fyrir að það séu orðin 10 eða 11 ár síðan ég spilaði fyrst á menntaskólaballi og að krakkarnir nenni enn að hlusta á mann.
Það gengur ekki að vera alltaf aftast. Unnsteinn sagði einu sinni við mig að ég yrði að hætta að semja bara fyrir aðra, ég yrði að semja undir eigin nafni. Þegar ég var að vinna með Young Karin þá var það náttúrlega Young Karin, og sömuleiðis með Sturlu Atlas. Þannig að það var mjög nett að geta stigið fram og algjörlega kominn tími á það.“
Það hlýtur að vera erfitt að fylgja svona sprengju eins og Litlir svartir strákar eftir og dugar ekkert minna en eitthvað álíka eða meira til.
„Sko, það er svo ógeðslega mikið í gangi hjá okkur núna sem á næstu vikum á eftir að koma í ljós. Ég er með verkefni í pípunum sem á eftir að breyta íslensku samfélagi. Ég má ekkert segja um það – en þetta er rosa stórt. Þettta er menningarbylting.“