„Draumur síðan í æsku“ Arnar Geir Halldórsson skrifar 10. september 2018 21:30 Sigþór Gunnar tryggði KA sigur. Heimasíða KA
Skyttan unga, Sigþór Gunnar Jónsson, reyndist hetjan í Akureyrarslagnum í Olís-deild karla í kvöld þegar KA lagði Akureyri Handboltafélag að velli með minnsta mun, 28-27. Þegar rúm mínúta lifði leiks tóku KA-menn leikhlé og lögðu á ráðin fyrir lokasókn sína í leiknum. Hún endaði með því að Sigþór braut sér leið í gegnum vörn Akureyrar og skoraði framhjá Marius Aleksejev í marki Akureyrar. Hann hikaði hvergi og var eðlilega í sigurvímu í leikslok. „Það er ekki til betri tilfinning. Stútfullt hús og þetta er bara draumur síðan í æsku.“ „Maður er í þessu til þess (að taka lokaskotið). Það þýðir ekkert að hika við það," segir Sigþór. KA-menn höfðu frumkvæðið framan af en um miðbik síðari hálfleiks komst Akureyri á bragðið og náði forystunni á lokamínútunum en Sigþór kveðst ekki hafa verið orðinn smeykur. „Nei það fór ekkert um okkur því við KA-menn gefumst aldrei upp,“ segir Sgiþór. Flestir sérfræðingar spá KA-manni falli úr deildinni en Sigþór hefur engar áhyggjur af því. „Ég tel að við getum gert góða hluti. Þetta er ógeðslega spennandi og við munum gefa okkur alla í þetta. Það er ekki hægt að biðja um meira en það,“ sagði Sigþór að endingu.
Olís-deild karla Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Sjá meira