Íranar halda áfram að uppfylla kjarnorkusamninginn Kjartan Kjartansson skrifar 31. ágúst 2018 10:27 Frá höfuðstöðvum Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar í Vín. Vísir/EPA
Alþjóðakjarnorkustofnunin segir að Íranar haldi áfram að uppfylla skilyrði kjarnorkusamnings þeirra við heimsveldin þrátt fyrir að Bandaríkin hafi dregið sig út úr honum. Eftirlitsmenn hafi fengið aðgang að öllum þeim stöðum sem þeir þurftu að rannsaka. Í ársfjórðungsskýrslu stofnunarinnar kemur fram að Íranar hafi haldið sig innan takmarkana á auðgun úrans og geymslu á efnum sem hægt væri að nota til að framleiða kjarnavopn sem kveðið er á um í kjarnorkusamninginum frá árinu 2015. Bandaríkin drógu sig einhliða út úr samningnum maí að skipan Donalds Trump forseta. Þjóðverjar, Bretar, Frakkar, Rússar og Kínverjar hafa hins vegar reynt að bjarga samningnum. Kjarnorkusamningurinn þótti sögulegur þegar hann var undirritaður árið 2015. Með honum féllust írönsk stjórnvöld á að takmarka kjarnorkuþróun sína gegn því að heimsveldin felldu niður refsiaðgerðir sem höfðu verið dragbítur á efnahagi landsins. Bandarísk stjórnvöld hafa hins vegar aftur lagt refsiaðgerðir á Íran sem eru þegar byrjaðar að sliga efnahaginn. Íranski gjaldmiðillinn hefur hrunið í verði að undanförnu, að sögn AP-fréttastofunnar.
Tengdar fréttir Refsiaðgerðir gegn Íran taka gildi í nótt Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann hyggst fylgja eftir refsiaðgerðum gegn Íran, eftir að Bandaríkin drógu sig úr alþjóðlegu kjarnorkusamkomulagi í vor sem undirritað var árið 2015 en það var í stjórnartíð Baracks Obama. 6. ágúst 2018 20:09 Trump sendi Íran tóninn í hástöfum Forseti Bandaríkjanna brást ókvæða við ræðu íranska starfsbróður síns, Hassan Rouhani, sem sá síðarnefndi flutti í nótt. 23. júlí 2018 06:44 Forseti Íran vill bjarga samkomulaginu Rouhani ræddi við Emmanuel Macron, forseta Frakklands, fyrr í dag og sagðist hann vilja að þau Evrópuríki sem koma að samkomulaginu tryggðu Íran aðgang að bankaþjónustu og tryggðu að Íran gæti selt olíu áfram. 27. ágúst 2018 23:37 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira
Refsiaðgerðir gegn Íran taka gildi í nótt Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann hyggst fylgja eftir refsiaðgerðum gegn Íran, eftir að Bandaríkin drógu sig úr alþjóðlegu kjarnorkusamkomulagi í vor sem undirritað var árið 2015 en það var í stjórnartíð Baracks Obama. 6. ágúst 2018 20:09
Trump sendi Íran tóninn í hástöfum Forseti Bandaríkjanna brást ókvæða við ræðu íranska starfsbróður síns, Hassan Rouhani, sem sá síðarnefndi flutti í nótt. 23. júlí 2018 06:44
Forseti Íran vill bjarga samkomulaginu Rouhani ræddi við Emmanuel Macron, forseta Frakklands, fyrr í dag og sagðist hann vilja að þau Evrópuríki sem koma að samkomulaginu tryggðu Íran aðgang að bankaþjónustu og tryggðu að Íran gæti selt olíu áfram. 27. ágúst 2018 23:37