Veiði

Veiðimyndakeppni flugunnar Zeldu í gangi

Karl Lúðvíksson skrifar
Zelda í sinni upprunalegu mynd.
Zelda í sinni upprunalegu mynd. Mynd: Kjartan Antonsson FB
Flugan Zelda var lengi eitt best geymda veiðileyndarmál höfundar flugunnar en hún þykir ansi veiðin við hinar fjölbreyttustu aðstæður.

Flugan Zelda sem kom fyrst fram opinberlega í fyrravor stendur fyrir skemmtilegri ljósmyndasamkeppni á facebook síðunni Zeldan. Glæsilegir vinningar eru í keppninni en Zeldan leitaði til valinkunnra fyrirtækja nú í vor til að sponsa keppnina. Mjög vel var tekið í þetta framtak Zeldunnar og er heildarverðmæti vinninga vel á annað hundrað þúsund krónur. Í verðlaun eru meðal annars tvær flugustangir, fluguhjól + lína. Glæsileg hjólataska frá Simms ásamt alvöru fluguboxi. Upprend scierra flíspeysa, 3.pör af stangarhöldurum ásamt öðrum vinningum.

Vinningar keppninnar verða nánar kynntir á facebook síðu Zeldunnar. Styrktaraðilar keppninnar eru Veiðivon Mörkinni, Veiðifélagið Nethyl, Vesturröst Laugarvegi, Veiðihúsið Sakka og verslunin Camo Hlíðarsmára. Nægur tími er til að taka þátt en keppnin stendur út hefðbundin sjóbirtingstíma eða út október. Það eina sem þarf til að taka þátt er að veiða fiskinn á Zeldu, senda inn mynd á facebook síðuna Zeldan og myndin er komin í keppnina. Zeldan á facebook er ört stækkandi grúbba sem telur nú þegar yfir 500 manns svo nú er um að gera að adda sér í grúbbuna og taka þátt eða bara fylgjast með. Og þar sem Ísland er lítið land mun erlendur fagmaður verða fenginn til að dæma keppnina til að gæta alls hlutleysis.






×