Efast um að spá Icelandair gangi eftir Kristinn Ingi Jónsson skrifar 2. ágúst 2018 07:00 Icelandair Group tapaði 2,7 milljörðum króna á öðrum fjórðungi ársins en félagið hafði ekki skilað tapi á fjórðungnum síðan 2010. Vísir/pjetur
Til þess að afkoma Icelandair Group í ár verði í samræmi við spá stjórnenda félagsins þarf félagið að vinna mikinn varnarsigur á þriðja fjórðungi ársins. Markaðurinn virðist hins vegar ekki hafa trú á því að svo verði. Þetta segir Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, um uppgjör Icelandair Group fyrir annan fjórðung ársins, sem birt var í fyrradag, en afkoma á fjórðungnum reyndist umtalsvert lakari en greinendur höfðu gert ráð fyrir. „Félagið þarf að breytast,“ sagði Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, á fundi með fjárfestum í gærmorgun. „Það er ljóst að árið er snúið hjá okkur en við erum í endalausum aðgerðum til þess að reyna að breyta þessari niðurstöðu,“ nefndi forstjórinn. Fjárfestar brugðust harkalega við uppgjöri ferðaþjónustufélagsins en til marks um það féllu hlutabréf í félaginu um 10 prósent í verði og ríflega 4,2 milljarðar af markaðsvirði þess þurrkuðust út í Kauphöllinni í gær. Gengi hlutabréfanna nam 7,85 krónum á hlut við lokun markaða síðdegis í gær og hefur fallið um hátt í 80 prósent frá því það var hvað hæst í apríl árið 2016. Hefur virði félagsins lækkað á sama tíma úr 195 milljörðum króna í 38 milljarða. Icelandair Group tapaði 25,7 milljónum dala, jafnvirði 2,7 milljarða króna, á öðrum fjórðungi ársins borið saman við 15,5 milljóna dala hagnað á sama tímabili í fyrra. EBITDA félagsins – afkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – nam 14,7 milljónum dala á fjórðungnum og dróst saman um 64 prósent frá fyrra ári.Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair GroupÍ tilkynningu frá félaginu kom fram að þrýstingur á fargjöld, lakari sætanýting og einskiptiskostnaður vegna truflana í flugáætlun skýrðu verri afkomu á milli ára. Sérfræðingur á fjármálamarkaði sem Fréttablaðið ræddi við segir að þrátt fyrir að fjárfestar hafi búist við slæmu uppgjöri – í ljósi þess að félagið lækkaði afkomuspá sína fyrir árið um 30 prósent í síðasta mánuði – þá hafi rekstrarniðurstaða annars fjórðungs komið markaðinum í opna skjöldu. „Uppgjör Icelandair olli vonbrigðum,“ segir Stefán Broddi, „og afkoman reyndist enn lakari en væntingar markaðarins stóðu til.“ Það komi kannski spánskt fyrir sjónir þar sem félagið hafi nýverið fært afkomuspá sína niður. „Afkoman á öðrum ársfjórðungi, ytri aðstæður og skilaboð stjórnenda samhliða uppgjörinu leiða til þess að miklar efasemdir virðast uppi um að félagið nái yfirhöfuð að skila þeirri afkomu yfir árið í heild,“ bætir Stefán Broddi við.Segja allt þurfa að ganga upp Hagfræðideild Landsbankans segir í skeyti til viðskiptavina sinna að svo virðist sem „allt þurfi að ganga upp“ til þess að afkoma félagsins í ár verði í efri mörkum afkomuspár stjórnenda þess, en stjórnendurnir gera ráð fyrir að EBITDA ársins verði á bilinu 120 til 140 milljónir dala. Erfitt sé að sjá að því markmiði verði náð. Telja greinendurnir líklegt að stjórnendur Icelandair Group geri ráð fyrir „góðum hækkunum“ á flugfargjöldum á seinni hluta ársins. Björgólfur nefndi á fundinum að verð á þotueldsneyti, sem er næststærsti kostnaðarliður félagsins, hefði hækkað um ríflega 60 prósent á síðustu tveimur árum. Á sama tíma hefðu fargjöld farið hratt lækkandi á mörgum mörkuðum félagsins, sér í lagi á markaðinum fyrir flug yfir Norður-Atlantshafið. Núverandi aðstæður gætu vart haldist óbreyttar. „Við reiknum með því að til framtíðar muni meðalfargjöldin fara upp á við,“ sagði hann. „Það er mikil umræða um það á meðal stórra félaga sem starfa á Atlantshafinu að meðalfargjöld séu of lág.“ Að sama skapi sagðist hann telja að til lengri tíma myndi gengi krónunnar veikjast frá því sem nú er sem hefði jákvæð áhrif á afkomu félagsins.
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Hækkun olíuverðs og íslenska krónan skýra 2,7 milljarða tap Icelandair Icelandair tapaði 25,7 milljónum dollara, jafnvirði 2,7 milljarða króna, á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Hækkun olíuverðs og óstöðug íslensk króna útskýra að mestu tapið að sögn Björgólfs Jóhannssonar forstjóra félagsins. 1. ágúst 2018 11:45 Færsluhirðar skilgreina áhættu gagnvart Icelandair og Wow Air með ólíkum hætti Færsluhirðingarfyrirtæki skilgreina áhættu gagnvart íslensku flugfélögunum með mismunandi hætti. Í tilviki Icelandair skilar fjárhæð fargjalds sér yfirleitt strax inn á reikninga félagsins. Í tilviki Wow Air halda færsluhirðingarfyrirtækin eftir 80-90 prósent af upphæðinni þangað til viðkomandi flugferð hefur verið farin. 30. júlí 2018 18:30 Markaðshlutdeild Icelandair minni en helmingur í fyrsta sinn Allt stefnir í að Icelandair muni í fyrsta sinn vera með minna en helmings markaðshlutdeild á flugferðum til og frá Íslandi. 24. júlí 2018 11:15 Mest lesið Að hringja sig inn veik á mánudögum Atvinnulíf Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Viðskipti innlent Segja áherslur Trump-stjórnarinnar fela í sér tækifæri fyrir Icelandair Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Viðskipti erlent Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Viðskipti erlent Fermingarmyndin ekki til útflutnings Atvinnulíf Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Viðskipti erlent Nammið rýkur áfram upp í verði Neytendur Skipt um mann í brúnni hjá Frumherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja áherslur Trump-stjórnarinnar fela í sér tækifæri fyrir Icelandair Skipt um mann í brúnni hjá Frumherja Arion banki og Alda hljóta Menntaverðlaun atvinnulífsins Björn Brynjúlfur selur Moodup Katrín Ýr frá JBT Marel til Heilsu Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Það besta og skrýtnasta í dýrasta auglýsingaplássi veraldar Tólf hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2025 Bein útsending: Stjórnendaverðlaun Stjórnvísi afhent Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Lokatilraun til að bjarga loðnuvertíð Varar við glötuðum tækifærum í kringum almyrkvann á næsta ári Þau hlutu UT-verðlaunin í ár Greiða Póstinum 618 milljónir fyrir alþjónustu Geta breytt sér í kúreka eða kappaksturshetju með gervigreind Landsbankinn lækkar vexti Sýn sendir frá sér afkomuviðvörun Flýta sér hægt í leit að dagskrárstjóra Bein útsending: UTmessan Rauð vaxtaviðvörun í á þriðja ár Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Björgólfur Thor og félagar verða stærstu eigendur Heima Fjárfestar tóku vel í uppgjör Festi Fetar í fótspor Herra hnetusmjörs „Held þeir vilji hafa þetta á Samfylkingarpóstinum“ Öllum skerðingum aflétt Arion tilkynnir um lækkun vaxta Mayoral til Íslands Rafn Heiðar ráðinn veitingastjóri Olís Seldu hugvitið og ríkissjóður stórgræðir Sjá meira
Hækkun olíuverðs og íslenska krónan skýra 2,7 milljarða tap Icelandair Icelandair tapaði 25,7 milljónum dollara, jafnvirði 2,7 milljarða króna, á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Hækkun olíuverðs og óstöðug íslensk króna útskýra að mestu tapið að sögn Björgólfs Jóhannssonar forstjóra félagsins. 1. ágúst 2018 11:45
Færsluhirðar skilgreina áhættu gagnvart Icelandair og Wow Air með ólíkum hætti Færsluhirðingarfyrirtæki skilgreina áhættu gagnvart íslensku flugfélögunum með mismunandi hætti. Í tilviki Icelandair skilar fjárhæð fargjalds sér yfirleitt strax inn á reikninga félagsins. Í tilviki Wow Air halda færsluhirðingarfyrirtækin eftir 80-90 prósent af upphæðinni þangað til viðkomandi flugferð hefur verið farin. 30. júlí 2018 18:30
Markaðshlutdeild Icelandair minni en helmingur í fyrsta sinn Allt stefnir í að Icelandair muni í fyrsta sinn vera með minna en helmings markaðshlutdeild á flugferðum til og frá Íslandi. 24. júlí 2018 11:15