Miðlunarlón Landsvirkjunar við það að fyllast Birgir Olgeirsson skrifar 2. ágúst 2018 14:58 Hálslón hefur hækkað um rúmlega 3 metra síðastliðna viku og vantar nú aðeins 80 cm á að það fyllist. Vísir/Pjetur
Rigningatíð í sumar hefur skilað sér í miklu innrennsli til miðlunarlóna og má reikna með að miðlunarlón Landsvirkjunar fyllist um eða fljótlega eftir verslunarmannahelgina. Hálslón hefur hækkað um rúmlega 3 metra síðastliðna viku og vantar nú aðeins 80 cm á að það fyllist. Áætlað er að Hálslón fari á yfirfall á föstudagskvöld en þá nær yfirborð lónsins 625 metrum yfir sjávarmáli. Þegar vatn rennur á yfirfalli myndast fossinn Hverfandi við vestari enda Kárahnjúkastíflu niður að gljúfurbarminum og þaðan steypist vatnið 90-100 metra niður í Hafrahvammagljúfur. Hágöngulón fylltist 23. júlí og aðeins vantar 30 cm á að Þórisvatn fyllist. Blöndulón hefur einnig hækkað hratt og nú vantar aðeins 10 cm á að vatn renni þar á yfirfalli. Vatni hefur verið hleypt um yfirfall Ufsarlóns í farveg Jökulsár í Fljótsdal frá því í lok júní, en eitt af skilyrðum umhverfisráðherra fyrir virkjunarleyfi við Kárahnjúka var að yfirfallsvatn væri nýtt á skipulegan hátt á ferðamannatíma og að leitast yrði við að ná meðalrennsli í farvegi Jökulsár í Fljótsdal í júlí og ágúst í góðum vatnsárum. Með því að hleypa vatni á farveginn er Landsvirkjun að vinna samkvæmt því skilyrði.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira