Dýravinir báru eld að dýragarði Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. ágúst 2018 11:36 Inngangur dýragarðsins. Google Street View
Anarkistar hafa lýst yfir ábyrgð á íkveikju sem framin var í dýragarði í Frakklandi í byrjun mánaðarins. Hvorki dýr né menn særðust í eldinum en miðasölubásar gjöreyðilögðust. Í nafnlausri yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu þarlends anarkistahóps segir að ákveðið hafi verið að bera eld að dýragarðinum - „því dýragarðar eru eins og fangelsi,“ líkt og það er orðað í yfirlýsingunni. anarchiste wrote a new post, Peaugres (Ardèche) : Des cages que l'on appelle liberté, on the site Le Laboratoire Anarchiste https://t.co/tLWUocI4am— noblogs (@noblogs) August 7, 2018 Dýragarðarnir þykist vernda dýrin en séu aðeins leifar af hrottaskap nýlendutímans. Þá ferðuðust landkönnuðir um höfin sjö og hnepptu villt dýr í ánauð áður en þau voru gerð að sýningargripum á heimaslóðum könnuðanna. Eldurinn kom upp í Peaugres Safari-garðinum aðfaranótt 2. ágústs síðastliðinn og var garðurinn lokaður daginn eftir meðan unnið var að uppsetningu nýrra miðasölubása. Garðurinn er rúmlega 80 hektarar að stærð og hýsir um 1150 dýr. Að jafnaði sækja 300 þúsund manns dýragarðinn á hverju ári. Íkveikjan er enn til rannsóknar.
Dýr Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira