Forseti Napoli: Maurizio Sarri og Jorginho á leið til Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2018 13:30 Maurizio Sarri Vísir/Getty
Antonio Conte er byrjaður að undirbúa Chelsea-liðið fyrir komandi tímabil en það lítur ekki út fyrir að Ítalinn stýri liðinu þegar tímabilið byrjar í ágúst. Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, staðfesti í dag að Maurizio Sarri sé að ganga frá sínum málum svo hann geti orðið næsti knattspyrnustjóri Chelsea. Sky Sports segir frá. „Sarri er nálægt því að taka við Chelsea. Lögmennirnir mínir eru að ganga frá hlutunum með lögmönnum hans,“ sagði Aurelio De Laurentiis. Aurelio De Laurentiis hefur ráðið Carlo Ancelotti sem eftirmann Maurizio Sarri hjá Napoli og var að kynna hann formlega í dag. Hinn 51 árs gamli Maurizio Sarri mun væntanlega ganga endanlega frá sínum málum í kvöld og í framhaldinu mun Antonio Conte taka pokann sinn á Stamford Bridge. Antonio Conte á eftir tólf mánuði af samningi sínum sem gaf honum samtals níu milljónir punda í vasann.conferenza stampa @ADeLaurentiis e @MrAncelotti gallery https://t.co/c5RChG3m8i#ForzaNapoliSemprepic.twitter.com/41y3D097Es — Official SSC Napoli (@sscnapoli) July 11, 2018 De Laurentiis sagði jafnframt frá því að Brasilíumaðurinn Jorginho vilji frekar fara til Chelsea en til Manchester City en bæði liðin eru á eftir þessum öfluga leikmanni. „Leikmaðurinn vill frekar búa í London en í Manchester. Ég skil hann vel,“ sagði Aurelio De Laurentiis en bætti við: „Ég skil það líka vel ef Chelsea vill borga honum hærri laun en City,“ sagði De Laurentiis og bað um leið Khaldoon [Al Mubarak], stjórnarformann Manchester City, afsökunar. „Ég ræð þessu ekki. Ef Jorginho fer til Chelsea þá tengist það ekkert samkomulagi mínu og Roman Abramovich um að Sarri taki við Chelsea-liðinu,“ sagði De Laurentiis.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira