Lífið

Fimm keppendur sem voru á leið á CrossFit-leikana féllu á lyfjaprófi

Birgir Olgeirsson skrifar
Greint var frá þessu á vef heimsleikanna í gær en þar var birtur listi yfir keppendur sem höfðu tekið þátt í undankeppnum heimsleikanna og fallið á lyfjaprófi eftir þær.
Greint var frá þessu á vef heimsleikanna í gær en þar var birtur listi yfir keppendur sem höfðu tekið þátt í undankeppnum heimsleikanna og fallið á lyfjaprófi eftir þær. Vísir/Getty
Fimm keppendur, sem höfðu unnið sér inn þátttökurétt á heimsleikunum í CrossFit, hafa verið úrskurðaðir í keppnisbann fyrir að falla á lyfjaprófi.

Greint var frá þessu á vef heimsleikanna í gær en þar var birtur listi yfir keppendur sem höfðu tekið þátt í undankeppnum heimsleikanna og fallið á lyfjaprófi eftir þær.

Af þeim voru tveir keppendur sem tóku þátt í einstaklingskeppni og höfðu unnið sér inn sæti á heimsleikunum, Um varð að ræða þau Emily Abbot frá Kanada og Andrey Ganin frá Rússlandi en bæði urðu þau uppvís að því að nota ólögleg frammistöðu bætandi efni og voru úrskurðuð í fjögurra ára keppnisbann.

Þrír keppendur til viðbótar sem voru hluti af liðum sem höfðu unnið sér inn þáttökurétt á heimsleikunum, Dean Shaw, Laura Hosier og Maria Ceballos, féllu einnig á lyfjaprófi. Voru þau öll dæmd í fjögurra ára keppnisbann og liðum þeirra meinuð þátttaka á heimsleikunum.

Áfrýjunarferli nokkurra til viðbótar enn í gangi

Alls féllu fjórtán þátttakendur í undankeppnunum á lyfjaprófi en tekið er fram á vef heimsleikanna að þeir hafi allir fengið þriggja sólarhringa frest til að áfrýja eftir að í ljós kom að þeir hefðu fallið á lyfjaprófi.

Tekið er fram á vef heimsleikanna að áfrýjunarferli nokkurra keppenda til viðbótar sé enn í gangi.

CrossFit er í samstarfi við fyrirtækið Drug Free Sport sem sér um lyfjapróf á keppendum. Drug Free Sport er einnig í samstarfi við bandarísku íþróttasamböndin NFL, NBA, MLB og NCAA, ásamt 300 öðrum íþróttasamböndum. Á vef heimsleikanna er tekið fram að rannsóknarstofa, sem vottuð er af Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnuninni, sjái um að greina blóð- og þvagsýni sem keppendur á heimsleikunum í CrossFit veita.

Ellefu féllu í fyrra

Í fyrra féllu ellefu keppendur, sem tóku þátt á mótum tengdum CrossFit-leikunum, á lyfjaprófi, en fimm árið 2016. Fjórir féllu árið 2015 og tveir árið 2014.


Í fyrra hafnaði Ástralinn Ricky Garard í þriðja sæti á heimsleikunum í Madison í Bandaríkjunum. Hann var sviptur verðlaununum og dæmdur í fjögurra ára keppnisbann eftir að upp komst að hann hafði notað stera.

Greint var frá því í gær að kærasta Annie Mistar Þórisdóttur, Dananum Fredrik Ægidius, hefði verið formlega boðið að taka þátt á heimsleikunum í Crossfit.

Fredrik endaði í sjötta sæti í undankeppni leikanna í Evrópu í Berlín í maí síðastliðnum. Fimm efstu sætin þar gáfu sæti á heimsleikunum.

Svo fór að sá sem endaði í fjórða sæti, Rússinn Andrey Ganin, féll á lyfjaprófi og hefur verið dæmdur í fjögurra ára keppnisbann frá Crossfit-keppnum. Reyndust testósterón-gildi í blóði hans of há sem þýddi að hann missti sæti sitt á leikunum og var Fredrik boðið hans sæti í staðinn.

Til mikils að vinna

Fjöldi Íslendinga keppir á heimsleikunum í ár en þeir eru fyrrnefnd Annie Mist ásamt Katrínu Tönju Davíðsdóttur, Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur, Eik Gylfadóttur og Björgvini Karli Guðmundssyni.

Heimsleikarnir í CrossFit fara fram í Madison dagana 1. til 5. ágúst næstkomandi.

Til mikils er að vinna en keppandi sem vinnur CrossFit-leikanna fær að launum 300 þúsund dollara, eða tæplega 32 milljónir króna.

Annað sætið gefur 100 þúsund dollara, eða tæplega 11 milljónir króna, þriðja sætið 75 þúsund dollara, eða tæplega 8 milljónir króna og fjórða sætið 50 þúsund dollara, eða rúmlega 5 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.