Dæmdir fyrir ránstilraun í Vestmannaeyjum Birgir Olgeirsson skrifar 18. júlí 2018 20:34 Atvikið átti sér stað í Vestmannaeyjum árið 2016. Vísir/pjetur
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo karlmenn til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir tilraun til ráns í Vestmannaeyjum árið 2016. Mennirnir tveir voru ákærðir fyrir að hafa hótað manni líkamsmeiðingum í því skyni að hafa af honum fjármuni. Fór annar af þeim sem væru dæmdir með manninn inn í anddyri Landsbankans á Bárustíg í Vestmanneyjum á meðan hinn stóð vörð. Í anddyrinu var reynt að neyða manninn til að taka fjármuni út úr hraðbankanum. Var manninum meinað að komast út úr anddyri bankans þegar hann gerði tilraun til þess. Þá var annar mannanna sakaður um að hafa slegið manninn í hnakkann þannig að hann féll í götuna en af árásinni hlaut hann bólgu aftan á hnakkann. Í frumskýrslu lögreglu kom fram að sá sem fyrir árásinni varð hefði greint frá því að hann hefði verið á Lundanum í Vestmannaeyjum. Eftir að staðnum hafði verið lokað hefði maður nálgast hann og sagt að hann skuldaði sér 15 þúsund krónur. Var farið með manninn að hraðbanka þar sem hann reyndi að taka út pening en það ekki tekist. Þegar þeir fóru út úr hraðbankanum var maðurinn sleginn í hnakkann. Maðurinn sagðist hafa verið mjög hræddur en náð að hlaupa í burtu og sagðist hafa falið sig í skurði í nágrenninu og verið þar í töluverðan tíma og svo gengið þaðan inn á lögreglustöðina. Mennirnir tveir voru dæmdir til sex mánaða fangelsisvistar sem er skilorðsbundin til tveggja ára, haldi þeir skilorði. Þá voru þeir dæmdir til að greiða allan sakarkostnað og kostnað verjenda sinna sem nam rúmlega 900 þúsund krónum.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Sjá meira