Jakob hefur áður skotið upp kollinum í íslenskri tónlist en hann rappar á laginu Honda Jazz Music á Anxiety City-plötu rapparans Joey Christ. Þetta er því ekki frumraun hans í orðins fyllstu merkingu. „Ég á samt ekki langan tónlistarferil að baki. Hann er rétt að byrja. En þetta lag er ákveðið loksins, loksins móment. Íslenska tónlistarsenan hefur ekki annað eftirspurninni eftir sumarsmellinum. Hér kemur hann á hvítum hesti, með stóru S-i,“ segir Jakob í samtali við Vísi.
Andlegur öryrki í ástarsorg
Lagið fjallar um ýmislegt, allt frá almennum hugleiðingum um lýðheilsu að stóru spurningum lífsins, um ástina, kvíðann og birtuna í lífi okkar allra. „Suma daga vaknar maður og vill einfaldlega ekki lifa,“ játar Jakob og útskýrir nánar: „Ég á við, ég er örlyndur. Eða mislyndur. Eða kannski bara manískt þunglyndur. En maður verður bara að vanda sig við að vera hamingjusamur og Sumarsmellurinn snýst um það. Síðasta sumar var ég andlegur öryrki í ástarsorg. Drakk óhóflega og fitnaði um þónokkur kíló. Sumarsmellur táknar bjartari tíma. Nú er hörðum frostavetri lokið og við tekur nýtt sumar.“Forfallinn sumarstrákur
Jakob segist hafa samið lagið á eina almennilega sólardegi ársins, 20. júní. „Sumir tónlistarmenn fá eitthvað út úr því að mæta í viðtal og segjast hafa samið eitthvað í skammdeginu. Það er orðin hálfgerð tugga. Sumarsmellurinn er ekki þannig. Þetta spratt úr öðrum jarðvegi, sólríkum jarðvegi, enda er ég í rauninni forfallinn sumarstrákur. Ég tala í laginu um að rúlla til móts við sumarið sem king. Það er nákvæmlega það sem Íslendingar verða að læra, að maður þarf að koma til móts við veðurguðina. Árstíðir eru spurning um sviptingar í hugarfari en ekki veðri. Sumarið fyrir Íslendingum þarf að vera spurning um andrúmsloft og góða stemningu, ekki fjölda rigningadaga. Það er einlæg skoðun mín.“Heimsmyndin skýr
Með þessum hætti kemur Jakob einlægri skoðun sinni til skila, með léttu lagi um sumar og stelpur. En hann er ekki við eina fjölina felldur. „Ég er líka að fóta mig í uppistandi, sem hefur gengið vel hingað til, og vil í raun bara nálgast þennan bransa með svolítið breiða skírskotun. Að vera skemmtikraftur; uppistandari, söngvari, rappari, et cetera. Þetta ber allt að sama brunni. Það er viss krafa um að maður skilgreini sig sem eitthvað eitt. Maður á ekki að pæla í því, bara framkvæma. Ég gengst frekar við stemningunni en að hanga heima í þunglyndi. Heimsmyndin verður skýr með réttu hugarfari. Góðar víbrur einvörðungu.“Hér að neðan má hlusta á Sumarsmellinn á Spotify.