Lífið

Landslið leikara í nýrri hlaupaauglýsingu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Landslið íslenskra leikara tekur þátt í auglýsingunni fyrir Reykjavíkurmaraþonið og hlaupastyrk í ár.
Landslið íslenskra leikara tekur þátt í auglýsingunni fyrir Reykjavíkurmaraþonið og hlaupastyrk í ár. Vísir/samsett
Fyrsta auglýsingin fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka og hlaupastyrk hefur verið birt á Facebook-síðu bankans. Í auglýsingunni Hlauptu koma fyrir margir af okkar ástsælustu leikurum og er útkoman ótrúlega flott. 

Verkefnið er að frumkvæði Ólafs Darra Ólafsson og Ilmar Kristjánsdóttur. Það var auglýsingastofan Brandenburg sem sá um þetta verkefni.  

„Þegar hópur leikara leitaði til Íslandsbanka með þá hugmynd að gefa vinnu sína og láta gott af sér leiða fengum við það hlutverk að útfæra auglýsingu fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka,“ segir Högni Valur Högnason aðstoðarhönnunarstjóri á Brandenburg í samtali við Vísi.

En hvað fær leikara til að hlaupa? Þeir hlaupa sem alls kyns karakterar í bíómyndum, þáttum og leiksýningum. Þeir hlaupa af allt öðrum ástæðum en venjulegt fólk. Þeir hlaupa fyrir ævintýraþrána, af einskærri gleði, undan uppvakningum og sumir hlaupa meira að segja frá sprengjum.

„Auglýsingin fyrir maraþonið í ár vísar í fræg minni og senur úr kvikmyndasögunni. Stórskotalið íslensku leiklistarsenunnar fær hér að blómstra í sínu náttúrulega umhverfi og auðvitað hvetja fólk til að hlaupa í eða styrkja Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Samúel og Gunnar leikstýrðu og Skot productions framleiddu.“

Eins og kom fram á Vísi í morgun fær enginn leikaranna greitt fyrir þátttöku í auglýsingunni eða verkefninu sem slíku en Íslandsbanki heitir á góðgerðafélögin sem þau hlaupa fyrir. Í fyrra var set met í áheitasöfnun þegar söfnuðust yfir 118 milljónir til 152 félaga.

Ilmur Kristjánsdóttir og Ólafur Darri Ólafsson eru í upphafsatriði auglýsingarinnar en þar má einnig sjá Unni Ösp Stefánsdóttur, Nínu Dögg Filippusdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Björn Hlyn Haraldsson, Sigurð Sigurjónsson, Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, Maríu Thelmu Smáradóttur, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, Arnmund Ernst Backman, Björn Thors, Gunnar Hanson, Gísla Örn Haraldsson, Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, Birnu Rún Eiríksdóttur, Hjört Jóhann Jónsson, Víking Kristjánsson, Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur, Guðmund Inga Þorvaldsson og Maríu Clöru Lúthersdóttur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.