Segir ólíklegt að vímuefnanotkun eigi sér stað inni á svæði hátíðarinnar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 23. júní 2018 13:49 Secret Solstice-tónlistarhátíðin stendur nú yfir í Laugardalnum. Vísir/Jóhanna
Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af rúmlega þrjátíu einstaklingum vegna vörslu fíkniefna í Laugardalnum í gærkvöldi og í nótt. Fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar Secret Solstice segir að fréttir um vímuefnanotkun inni á svæðinu standist ekki. Í gær greindi fréttastofa Stöðvar 2 frá því að foreldrar hefðu áhyggjur af vímuefnanotkun á hátíðinni Secret Solstice, en að sögn foreldris urðu þeir varir við talsverða kannabis neyslu og unglingadrykkju á svæðinu. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að í gærkvöldi og nótt hafi lögregla haft afskipti af rúmlega þrjátíu einstaklingum vegna vörslu fíkniefna í Laugardalnum þar sem tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram. „Mér finnst líklegt að þetta hafi verið fólk sem eru hátíðargestir. Ólíklegt finnst mér að þeir hafi verið að neyta fíkniefna á svæðinu þar sem gæslan er mjög öflug og vímuefnaneysla ekki liðin á svæðinu,“ segir Björn Teitsson, fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar Secret Solstice. Hann gefur lítið fyrir um áfengisneyslu inni á svæðinu. „Fréttir af því að fólk undir lögaldri sé að kaupa áfengi á svæðinu standast held ég illa en að því sögðu þá getum við auðvitað ekki fylgst með því sem gerist fyrir utan hátíðarsvæðið. Mér þótti leiðinlegt að heyra þetta úr dagbók lögreglu í morgun en ég held að það sé bara örfáir einstaklingar af mjög stórum hópi gesta sem er að skemmta sér mjög vel og fallega,“ segir Björn.
Secret Solstice Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira