Jákvæður ræstitæknir fékk óvænta peningagjöf Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. júní 2018 10:55 Herman Gordon er sagður vera einn kátasti ræstitæknir Bretlandseyja. BBC
Ræstitæknir í háskólanum í Bristol brosir hringinn þessa dagana. Nemendur við skólann komu nefnilega færandi hendi á dögunum og færðu honum 1500 pund, um 210 þúsund krónur, svo hann geti heimsótt fjölskyldu sína á Jamaíku. Nemendur skólans lýsa Herman Gordon sem „holdgervingi hamingjunnar.“ Í samtali við breska ríkisútvarpið segir Gordon að það sé mikilvægt að senda frá sér jákvæða strauma. Krakkarnir í skólanum eru undir miklu álagi og því hjálpar neikvæði ekki neitt. „Ég tala fallega til þeirra og þau tala fallega til mín“ segir Gordon. Alls tóku um 230 nemendur þátt í söfnunni. Myndband af afhendingu seðlaumslagsins rataði á netið og má sjá það hér að neðan. Umslaginu fylgdi kveðja frá nemendunum þar sem þeir þökkuðu ræstitækninum fyrir að lífga upp á daginn sinn. „Við viljum að þú vitir að við elskum og metum þig,“ segir meðal annars í bréfinu. Pundin mun Gordon svo nota, sem fyrr segir, til að fara með eiginkonu sinni í vikuferð til Jamaíku, þangað sem hann á ættir að rekja. Myndband BBC frá afhendingunni má sjá hér að neðan.
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Lífið samstarf Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Sjá meira