Selfoss batt enda á sigurgöngu Þórs/KA Einar Sigurvinsson skrifar 19. júní 2018 21:11 Sandra Mayor náði ekki að skora fyrir Þór/KA í kvöld. vísir/eyþór
Selfoss og Þór/KA gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í sjöttu umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld, en fjórir leikir fóru fram í kvöld. Fyrir leikinn hafði Þór/KA unnið alla fimm leiki sína í deildinni en Selfoss aðeins unnið einn leik. Þór/KA fer niður í 2. sæti deildarinnar með jafnteflinu með 16 stig, tveimur stigum á eftir Breiðablik. Selfoss er í 6. sæti með fimm stig. Í Kópavoginum vann Breiðablik 3-1 sigur á FH. Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Blikum yfir á 65. mínútur og skömmu síðar jafnaði FH, 1-1, eftir sjálfsmark frá Kristínu Dís Árnadóttur. Blikar komust yfir á 74. mínútu þegar Hugrún Elvarsdóttir varð fyrir því óláni að skora annað sjálfmark leiksins. Agla María Albertsdóttir gulltryggði síðan stigin þrjú fyrir Kópavogsliðið á 85. mínútu. Breiðablik fer með sigrinum í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga en FH í 9. sætið. Valur vann stórsigur á KR, 4-0. Elín Metta Jensen og Guðrún Karítas Sigurðardóttir skoruðu tvö mörk hvor fyrir Val. Með sigrinum fer Valur upp að hlið Þórs/KA í 3. sæti deildarinnar með 15 stig. KR situr hins vegar í 10. og neðsta sæti deildarinnar.Upplýsingar eru fengnar af Fótbolta.net.Úrslit kvöldsins í Pepsi-deild kvenna: Selfoss - Þór/KA 0-0 Valur - KR 4-0 Breiðablik - FH 3-1 Grindavík - HK/Víkingur 1-1
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira