Keith Richards arftaki Magga Kjartans sem gleðifélagi Jóns Ólafs Jakob Bjarnar skrifar 24. maí 2018 10:25 Þeir feðgar Davíð og Magnús Kjartansson með Jóni Ólafssyni í Dublin. Keith er arftaki Magga sem hans sérlegi gleðifélagi. „
Þegar ég hætti öllu þá missti Jón gleðifélaga. Þá hófst leit að einhverjum sem gæti reynst arftaki. Og úr hópi umsækjenda varð Keith Richards fyrir valinu sem einhver sem gæti sýnt sig í að vera í það minnsta skuggamynd af því sem var. Einhver sem er líklegur til að geta þraukað fram undir morgunsárið,“ segir Magnús Kjartansson tónlistarmaður.Jón Ólafsson innsti koppur í herbúðum Stónsarana Rokkfeðgarnir Davíð og Magnús Kjartansson fóru í fylgd með Jóns Ólafssonar athafnamanns á tónleika Rolling Stones í Dublin um síðustu helgi og voru þar á VIP-passa. Að sögn Davíðs var þetta mikil upplifun. Þeir voru að þvælast þarna baksviðs með nánustu aðstandendum, svo sem eiginkonu Richards, Patti Hansen og dætrunum Theodora Dupree og Alexandra Nicole. Og sáu svo Stones á fremsta bekk. „Alveg fyrir framan sviðið, sviðið var ekki hátt. Bara eins og á tónleikum í Bæjarbíó. Klikkað. Þeir voru fallega sloppí,“ segir Davíð.Stones voru skemmtilega sloppí á tónleikunum í Dublin, að sögn Davíðs Magnússonar gítarleikara sem var á fremsta bekk á tónleikunum.gettyEn, það kom sem sagt á daginn að Jón, sem var á árum áður langumfangsmesti tónlistarútgefandi á Íslandi og þá kenndur við Skífuna, var innsti koppur í búri í herbúðum Rolling Stones. Magnús kann nánari skýringar á því.Magnús ánægður með arftaka sinn „Sko, hluturinn er þessi. Jón er náttúrlega með vatnið sitt þarna, sponser að túrnum,“ útskýrir Magnús. En Vísir greindi nýverið frá þeim samningum öllum. „Já, og er að flækjast með þeim. Hann er mjög góður vinur umsjónarkonu Keith Richards. Sem er fyrrverandi umsjónarkona Mick Jagger, sú sem Mick sigaði á Keith þegar Keith var í andaslitrum… en, þetta eru reyndar hugtök sem maður er hættur að tengja sama: Keith Richards og andaslitur. Maður hefur verið að bíða eftir dánartilkynningunni í 40 ár. Búist við slíku nánast daglega,“ segir Magnús og vísar til þess að Keith Richards er líkast til þekktastur ólifnaðarmanna rokksögunnar allrar.Og nú eru þeir orðnir „læk ðiss“ Jón og Keith? „Já, ég er bara ánægður með að hann skyldi hafa fundið einhvern í staðinn fyrir mig,“ segir Magnús og ljóst að honum þykir þarna hafa vel til tekist; verðugur arftaki.
Tengdar fréttir The Rolling Stones munu bara drekka íslenskt vatn Rokkstjörnurnar hafa gert samkomulag við Icelandic Glacial um að sjá tónleikaferðalagi þeirra fyrir íslensku vatni sem sett er á flöskur á umhverfisvænan hátt. 10. maí 2018 21:46 Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira
The Rolling Stones munu bara drekka íslenskt vatn Rokkstjörnurnar hafa gert samkomulag við Icelandic Glacial um að sjá tónleikaferðalagi þeirra fyrir íslensku vatni sem sett er á flöskur á umhverfisvænan hátt. 10. maí 2018 21:46