750 stúlkur kynntu sér tæknina Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 3. maí 2018 20:00
Í fimmta skipti bauð Háskólinn í Reykjavík stúlkum á fimmtánda ári, í 9. bekk í grunnskóla, í skólann til að kynnast tækniheiminum betur með því að hitta fyrirmyndir og fræðast um möguleika á tæknistörfum í framtíðinni. Stúlkurnar tóku þátt í vinnusmiðjum af ýmsum toga og voru eldhressar eins og sést í myndskeiðinu frá kvöldfréttum Stöðvar 2. Þar segja þær meðal annars að forritun sé ekkert strákafag en það mætti kynna það betur fyrir stelpum, til dæmis í grunnskólanum. Einnig að strákar séu aldnir upp við að vera meira í tölvum og sumum stelpum finnist tölvur „strákalegar." En það vill Háskólinn í Reykjavík leiðrétta, og sýna fram á að tölvur og tækni sé fyrir bæði stráka og stelpur, og það hefur gengið ágætlega að sögn Jóhönnu Vigdísar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra hjá HR, þótt töluvert sé í land. „Við viljum sérstaklega fá stelpur inn því við sáum mikinn kynjahjalla í þessum fögum og það gerum við með því að kynna þær fyrir kvenkyns fyrirmyndum. Haustið 2011 voru bara 11% nýnema í tölvunarfræði stelpur en haustið 2017 erum við komin upp í 28% hlutfall kvenna“ segir Jóhanna Vigdís.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent