Vísbendingar um tilfinningagreind hesta Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. apríl 2018 10:00 Hestum voru sýndar myndir af reiðu og brosmildu fólki. Vísir/AP
Hestar geta lesið tilfinningar úr svipbrigðum fólks ef marka má nýja rannsókn á vegum háskólans í Sussex. Þessi tilfinningagreind er einnig þekkt á meðal hunda en niðurstöðurnar gefa að sama skapi til kynna að hestar verði varari um sig í návist einstaklinga sem sýnt hafa reiðar tilfinningar í návist þeirra. Rannsóknarteymið frá Sussex sýndi hestum myndir af andlitum fólks. Ellefu hestum voru sýndar myndir af bersýnilega reiðu fólki en 10 hestar fengu að sjá mynd af brosandi einstaklingum. Hestarnir fengu að horfa á myndina í um tvær mínútur og um þremur til sex klukkustundum síðar voru þeir leiddir fyrir einstaklinginn á myndinni - sem þá var með hlutlausan svip. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þessa að hestar, sem fengu að sjá reiðar myndir, horfi markvert lengur á einstaklinginn með vinstra auga sínu en þeir hestar sem sáu brosmilt fólk. Þá segja rannsakendurnir að hestarnir sem fengu reiðu myndirnar séu stressaðari í návist myndefnisins. Það sjáist meðal annars á atferli þeirra en þeir eru sagðir líklegri til að sleikja út um, tyggja, klóra sér og lykta af jörðinni en hestarnir sem fengu að sjá glaðlegar myndir. Nánar má fræðast um niðurstöður rannsóknarinnar hér.
Dýr Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Fleiri fréttir Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Sjá meira