Ísland komið á toppinn í fjarskiptum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. apríl 2018 11:12 Houlin Zhao í ræðustól á samkomunni í morgun. Vísir/Böddi
Ísland er í fyrsta sæti í þróun fjarskiptainnviða í samantekt Alþjóðafjarskiptasambandsins miðað við árið 2017. Þetta kom fram á morgunverðarfundi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins sem fram fór á Grand hótel í morgun. Þar tók Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra við viðurkenningu frá Alþjóðafjarskiptasambandinu vegna árangursins. Suður-Kórea var í efsta sæti listans fyrir árið 2016 en þá sat Ísland í öðru sæti. Þjóðirnar hafa því sætaskipti í toppsætum listans. Næstu lönd á eftir eru Sviss, Danmörk, Bretland og Kína sem öll voru á svipuðum slóðum árið áður. Raunar eru litlar breytingar á listanum á milli ára. Houlin Zhao, aðalritari Alþjóðafjarskiptasambandsins, afhenti ráðherra viðurkenninguna og ávarpaði samkomuna. Hann sagði Ísland til fyrirmyndar þegar kæmi að fjarskiptum. Mikil og góð fjárfesting og uppbygging á sviði fjarskipta hefði skilað sér. Nefndi hann sérstaklega árangur af því að tengja sveitir landsins þegar kæmi að fjarskiptakerfum. Ísland væri strjálbýlt land en árangurinn sem náðst hefði merkilegur í því ljósi. Sigurður Ingi þakkaði fyrir viðurkenninguna og hrósaði íslenskum fjarskiptafyrirtækjum fyrir vinnu sína. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, hélt erindi um helstu áskoranir í fjarskiptum og netöryggismálum. Þar verði næsta áskorun innleiðing 5G. Þá sátu ráðherrann, Houlin Zhao og Hrafnkell fyrir vörum í pallborðsumræðu.
Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Málmhlutur í maís Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira