Lögreglan á Spáni hefur handtekið fyrrverandi starfsmann HSBC-bankans sem hlaut dóm í Sviss fyrir að leka gögnum um meiriháttar skattaundanskot stórra viðskiptavina bankans. Handtakan er jafnvel talin geta tengst katalónskum sjálfstæðissinna sem dvelur í Sviss og spænsk yfirvöld vilja fá framselda.
Herve Falciani starfaði í tölvudeild HSBC í Sviss. Hann afhenti frönskum yfirvöldum gögnin árið 2008. Frönsk yfirvöld deildu þeim með Spáni og fleiri löndum. Falciani vann meðal annars með yfirvöldum á Spáni. Svissneska útibú HSBC var rannsakað í nokkrum löndum vegna ásakana um að það hefði hjálpað auðugum viðskiptavinum að forðast skattgreiðslur.
Tvö ár er síðan Falciani var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir iðnnjósnir, gagnastuld og rof á trúnaði og bankaleynd. Hann var handtekinn í Barcelona árið 2012 en þá neituðu spænsk stjórnvöld að framselja hann, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar.
Mark Henzelin, lögmaður Falciani, óttast að nú horfi málið öðruvísi við spænskum stjórnvöldum. Þau vilja hafa hendur í hári Mörtu Rovira, katalónsks sjálfstæðissinna sem er í Sviss. Henzelin veltir því upp hvort að handtakan gæti tengst einhvers konar samningi á milli spænskra og svissneskra yfirvalda um skipti.
„Mér hefur ekki tekist að staðfesta það en ef það væri tilfellið þá fyndist mér það fremur andstyggilegt. Það er ekki svissnesk réttarhefð að gera samninga af þessu tagi. Mér sýnist það frekar venjan hjá Rússlandi og slíkum ríkjum,“ segir Henzelin.
Starfsmaður HSBC sem ljóstraði upp um skattaundanskot handtekinn

Tengdar fréttir

Kvikmyndastjörnur og íþróttamenn í leynigögnum HSBC
Svo virðist sem útibú bankans hafi verið vinsælt hjá fræga og ríka fólkinu.

Maðurinn sem lak leynigögnum HSBC: „Bankar hafa búið til kerfi sem gerir þá ríka á kostnað samfélagsins“
Kerfisfræðingurinn Herve Falciani ólst upp í Mónakó og segir að það hafi því legið beint við að hann færi að starfa í fjármálageiranum.

HSBC hjálpaði ríkum viðskiptavinum að komast hjá skatti
Svissneski hluti HSBC er sakaður um að aðstoða viðskiptavini sína við að fela verðmætar eignir fyrir skattayfirvöldum auk þess að sýna viðskiptavinum hvernig þeir gætu greitt lægri skatta.

Lögregla gerir húsleit í höfuðstöðvum HSBC í Sviss
Bankinn og einstaklingar honum tengdir eru til rannsóknar vegna peningaþvættis.