Víkingsstelpurnar afgreiddu Asera í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2018 16:00 Karólína Jack innsiglaði sigur íslensku stelpnanna. Vísir/Getty
Íslenska sautján ára landslið kvenna í fótbolta vann lokaleik sinn í millriðli undankeppni EM sem lauk í Þýskalandi í dag. Íslensku stelpurnar unnu þá 3-1 sigur á Aserbaídsjan eftir að hafa verið komnar í 2-0 strax í hálfleik. Víkingurinn Arna Eiríksdóttir skoraði tvö fyrstu mörk Íslands í leiknum en þau komu bæði eftir hornspyrnur frá fyrirliðanum Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Karólína Lea spilar með Breiðabliki í Pepsi-deildinni í sumar en hún er uppalin FH-ingur. Víkingurinn Karólína Jack bætti svo þriðja markinu við, snemma í síðari hálfleik. Víkingsstelpurnar skoruðu því öll mörk íslenska liðsins í leiknum en lið HK/Víkings er nýliði í Pepsi-deild kvenna í sumar og það er ljóst að þar spila ungar og stórefnilegar knattspyrnukonur. Aserar minnkuðu muninn um miðjan hálfleikinn og var þar sjálfsmark íslenska liðsins. Ísland endaði í öðru sæti riðilsins á eftir gestgjöfunum í Þýskalandi, sem lögðu Íra í dag, 2-0. Ísland tapaði 3-1 á móti Þýskalandi en vann Írland 1-0. Þýskalandi tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Litháen nú í maí.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Sjá meira