Eignir Íslendinga erlendis drógust saman Kristinn Ingi Jónsson skrifar 14. mars 2018 06:00 Íslendingar hafa ekki átt jafn lítið af fjármunaeignum, í krónum talið, á erlendri grundu frá árinu 2005. Vísir/Stefán
Íslendingar áttu 684 milljarða króna í beinni fjármunaeign erlendis í lok árs 2016 samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabanka Íslands. Til samanburðar var bein fjármunaeign Íslendinga erlendis 990 milljarðar króna í árslok 2015 og nam samdrátturinn á árinu 2016 því ríflega 30 prósentum. Telja má sennilegt að mikil gengisstyrking krónunnar skýri samdráttinn að mestu leyti. Íslendingar hafa ekki átt jafn lítið af fjármunaeignum, í krónum talið, á erlendri grundu frá árinu 2005. Samkvæmt tölum Seðlabankans áttu útlendingar um 1.110 milljarða króna í beinni fjármunaeign hér á landi í lok árs 2016 borið saman við 1.017 milljarða í árslok 2015. Sem fyrr eiga Íslendingar mest af fjármunaeignum í Hollandi eða 286 milljarða króna í lok árs 2016. Bein fjármunaeign Íslendinga í Bretlandi var 121 milljarður á sama tíma og dróst hún verulega saman á milli ára, en hún nam 212 milljörðum króna í árslok 2015. Auk þess áttu Íslendingar fjármunaeignir upp á 59 milljarða á Kýpur og 33 milljarða í Lúxemborg í lok árs 2016, svo nokkur dæmi séu nefnd. Eignarhald útlendinga á fjármunaeignum hér á landi var að langmestu leyti í gegnum Lúxemborg í lok 2016. Voru þá eignir upp á 921 milljarð króna skráðar í eigu lúxemborgskra aðila borið saman við 809 milljarða í lok árs 2015. Um 120 milljarða króna eignir hér á landi voru í árslok 2016 skráðar í eigu hollenskra aðila og 87 milljarða eignir í eigu svissneskra aðila. Þá var bein fjármunaeign Bandaríkjamanna hér á landi neikvæð um 319 milljarða króna í lok árs 2016 en hún hefur verið neikvæð allt frá árinu 2013.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira