Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - Höttur 94-66 │ Stórsigur í Þorlákshöfn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. mars 2018 20:15 Ólafur Helgi Jónsson vísir/andri Þór Þorlákshöfn valtaði yfir Hött í fyrsta leik kvöldsins í Domino’s deild karla í körfubolta. Eftir jafnan leik framan af unnu Þórsarar 28 stiga sigur, 94-66. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhlutanum. Heimamenn gerðu áhlaup snemma leiks en gestirnir frá Egilsstöðum svöruðu og það munaði aðeins tveimur stigum á liðunum eftir fyrstu tíu mínúturnar. Í öðrum leikhluta hrundi allt í leik Hattar. Þórsarar skoruðu að vild á meðan lítið gekk í liði gestana og fór leikhlutinn 35-12 fyrir Þór og heimamenn fóru með 25 stiga forystu inn í leikhléið. Eftir það var ekki aftur snúið. Það var allt annað að sjá til liðs Hattar í upphafi seinni hálfleiksins og þeir stóðu vel í Þórsurum og var jafnt á með liðunum. En það gerði lítið fyrir Hött, þeir voru langt undir í leiknum og þurftu að gera miklu meira en að jafna leik Þórsara til að koma til baka. Fjórði leikhluti var svo bara meira af því sama, Þór komst í 30 stiga mun snemma í leikhlutanum og úrslitin ráðin.Afhverju vann Þór? Annar leikhluti gerði eins og áður segir út um leikinn. Höttur gleymdi því hvernig á að spila vörn á meðan lítið gekk í sóknarleiknum. Þór gat spilað nærri allan seinni hálfleikinn aðallega á mönnum af bekknum og Hetti gekk lítið að minnka muninn, það segir ýmislegt um spilamennsku liðsins.Hverjir stóðu upp úr? Chaz Williams átti stórleik í fyrri hálfleik og skoraði 28 stig. Hann kom lítið við sögu í seinni hálfleik. Halldór Garðar Hermannsson skilaði sínu og mikið af yngri leikmönnum Þórs áttu fínar innkomur í leikinn.Hvað gekk illa? Það var fátt sem gekk vel hjá Hetti. Sóknarleikurinn var oft á tíðum mjög erfiður og þeir voru að fá á sig mjög mikið af villum í varnarleiknum.Hvað gerist næst? Það er þétt spilað í deildinni og er næsta umferð strax á sunnudaginn. Þá fara Hattarmenn í Vestubæinn og mæta KR og Þórsarar mæta nöfnum sínum frá Akureyri á Akureyri.Einar Árni á hliðarlínunni í vetur.vísir/antonEinar Árni: Vildum spila góðan körfubolta „Ánægður með fínt framlag og mjög góðan annan leikhluta,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs, eftir leikinn. „Vorum hægir varnarlega í fyrsta leikhluta, seinni hálfleikurinn var svona eins og gerist í leik þar sem er svona mikill munur.“ „Það er staðreynd að við gefumst ekkert upp. Við ætlum að reyna að nýta þessa tvo leiki til að vera betri í körfu og hugsa fyrst og síðast um að vinna okkar leiki,“ sagði Einar Árni um möguleikana á úrslitakeppninni, en liðið þarf að vinna sína tvo síðustu leiki og treysta á að Stjarnan tapi báðum leikjum sínum. „Við vorum fyrst og fremst að hugsa um að spila góðan körfubolta og mér fannst við gera það á mörgum tímum í dag,“ sagði Einar Árni Jóhannsson.Viðar á hliðarlínunni að messa yfir sínum mönnum, eins og honum einum er lagið.vísir/antonViðar Örn: Hauslausir menn nenna ekki að spila vörn „Þetta var bara dapurt, Þórs liðið var miku betra,“ sagði Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar eftir leikinn. Viðar eyddi leiknum uppi í áhorfendastúku eftir að hafa verið dæmdur í leikbann fyrir að gefa Herði Axel Vilhjálmssyni olnbogaskot í leik Keflavíkur og Hattar á dögunum. „Ég hefði engu breytt hérna í dag þegar hauslausir menn í svörtum búningum nenna ekki að spila vörn. “ „Við spiluðum fjórar, fimm mínútur eftir plani en svo fara menn bara að hugsa um rassgatið á sjálfum sér og nenna ekki að spila vörn og fara út úr plani. Menn læra vonandi af því bara,“ sagði Viðar Örn Hafsteinsson. Dominos-deild karla
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti