Farþegar hafa setið fastir í flugvél í þrjá tíma Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2018 23:28 Farþegarnir í vél Wizz air frá Riga hafa beðið í á fjórðu klukkustund eftir að komast frá borði. Friðrik Ingi Friðriksson
Veður kemur enn í veg fyrir að hægt sé að nota landgöngubrýr á Keflavíkurflugvelli. Farþegar í vél Wizz Air sem frá Riga fyrr í kvöld hafa beðið í þrjá tíma út í vél og hafa ekkert fengið að vita um hvenær þeir komast út. Hætt var að nota landgöngubrýr í Keflavík af öryggisástæðum vegna hvassviðris síðdegis í dag. Sátu farþegar þá fastar úti í vélum því ekki var hægt að koma þeim út. Verulegar tafir hafa orðið á flugi og Icelandair hefur aflýst átta ferðum til Evrópu og Bandaríkjanna í dag og á morgun. Friðrik Ingi Friðriksson sat enn fastur úti í vél þegar blaðamaður Vísis náði tali af honum nú skömmu eftir klukkan ellefu í kvöld. Hann var að koma með Wizz Air frá Riga í Lettlandi og lenti vélin í Keflavík kl. 20:19. Hann og farþegarnir í vélinni hafa því beðið í rúmar þrjár klukkustundir eftir að komast út. „Ég hef aldrei lent í svona áður. Það er skrýtið að það skuli ekki vera til búnaður til að ná farþegum út úr flugvél í roki á Íslandi,“ segir Friðrik Ingi við Vísi.Brýrnar komnar aftur í notkunFarþegarnir hafi engar upplýsingar fengið. Friðrik Ingi segist ekki vita hvenær þeim verður hleypt út en hann telji að það verði ekki strax. Farþegarnir hafi þó tekið biðinni vel fram að þessu og haldið ró sinni. „Frekar já,“ svarar Friðrik Ingi og hlær þreytulega spurður að því hvort að honum sé ekki farin að leiðast biðin.Uppfært 23:50 Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að vél Wizz air hafi verið sú eina sem hafi beðið svo lengi úti á flugbraut. Landgöngubrýrnar hafi verið teknar aftur í notkun ná á tólfta tímanum í kvöld. Flugvallarstarfsmenn þurftu að notast við stigabíla seinni partinn til þess að hleypa fólki frá borði og koma vélum af stað.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira