Nýkomnir úr löngu fríi en spila nú ekki deildarleik í 16 daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2018 18:00 Sigurbergur Sveinsson. Vísir/Stefán
Eyjamenn unnu í gær sannfærandi níu marka sigur á Fjölni í sextándu umferð Olís-deildarinnar en það verður langt þangað til að þeir spila sinn næsta deildarleik. Leikur ÍBV og Fjölnis í gær, þriðjudaginn 6. febrúar, verður eini deildarleikur ÍBV liðsins næstu sextán daga. Næsti leikur ÍBV í Olís-deildinni samkvæmt heimasíðu HSÍ verður ekki fyrr en 22. febrúar næstkomandi. Leikjum Eyjaliðsins í 17. og 18. umferð hefur verið frestað vegna þátttöku ÍBV í Evrópukeppni. ÍBV mætir ísraelska liðinu SGS Ramhat Hashron HC í sextán lið úrslitum Áskorendakeppni Evrópu og fá algjöran frið frá Olís-deildinni á meðan. ÍBV mætir SGS Ramhat Hashron HC fyrst í Vestmannaeyjum 10. febrúar og spilar síðan seinni leikinn út í Ísrael laugardaginn 17. febrúar. ÍBV þarf reyndar að klára einn leik áður en kemur að Evrópuleikjunum tveimur því liðið heimsækir Gróttu í átta liða úrslitum Coca Cola bikarsins á þriðjudagskvöldið kemur. Fyrsti leikur ÍBV í Olís-deildinni eftir Ísraelsævintýrið verður heimaleikur á móti Íslandsmeisturum Vals fimmtudaginn 22. febrúar og aðeins þremur dögum síðar koma FH-ingar síðan í heimsókn út í Eyjar. Þremur dögum síðar er síðan þriðji heimaleikur ÍBV á einni viku þegar Selfyssingar mæta út í Eyjar.
Olís-deild karla Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Uppeldiskerfi argentínska fótboltans níðist á börnum Fótbolti Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira