Skoðun

Eflum öfluga baráttu

Benedikt Traustason og Helga Lind Mar skrifar
Á seinustu misserum hafa nemendur haft sterka rödd innan háskólaráðs sem hefur skipt sköpum í okkar stærstu baráttumálum. Röskva hefur meðal annars leitt baráttuna þegar kemur að uppbyggingu stúdentagarða á háskólasvæðinu og þeirri baráttu viljum við halda áfram. Lykillinn að því að rödd stúdenta verði áfram sterk er hins vegar árangursríkt samstarf milli allra þeirra sem starfa í umboði nemenda innan háskólaráðs og í nefndum ráðsins. Við leggjum til að stofnaður verði samráðsvettvangur allra þeirra fulltrúa stúdenta sem koma að hagsmunabaráttu nemenda bæði á fundum háskólaráðs og í nefndum þess.

Núna þegar fjármögnun til skólans virðist loksins vera á leið í rétta átt er mikilvægt að fulltrúar stúdenta berjist fyrir því að þessir fjármunir renni til þeirra mála sem stúdentar hafa barist fyrir. Þau mál eru meðal annars bætt kennsla, aðstaða, aukin sálfræðiaðstoð við nemendur skólans og hvernig jafnrétti allra til náms sé tryggt.

Jafnrétti er eitt af þremur gildum Háskóla Íslands en sjálf höfum við kynnst baráttunni fyrir jöfnum rétti í gegnum sjálfboðaliðastarf og stjórnarsetu í Samtökunum '78 og Druslugöngunni. Nýleg barátta kvenna í vísindasamfélaginu undir myllumerkjunum #metoo og #ískuggavaldsins síðastliðna mánuði minnir óneitanlega á það hversu mikið verk er enn óunnið í jafnréttismálum innan háskólasamfélagsins. Þar eiga nemendur að vera leiðandi og þrýsta á skólann að þessi mál verði tekin föstum tökum.

Þegar kemur að skipulagsmálum á háskólasvæðinu eru þrír þættir sem snerta stúdenta hvað mest.

Mikill árangur hefur náðst á undanförnum mánuðum með kröftugri baráttu fulltrúa nemenda í háskólaráði en á tímabili leit út fyrir að hætt yrði við uppbyggingu stúdentaíbúða við Gamla Garð. Stofnaður var samráðshópur um uppbyggingu á þeim reit og krafðist fulltrúi Röskvu í háskólaráði þess að nemendur fengju sæti í þeim hópi. Niðurstaða samráðshópsins var kynnt fyrr í vikunni í kjölfar samþykktar háskólaráðs á samkomulagi Háskóla Íslands og Félagsstofnunar stúdenta. Samkomulagið felur í sér að ekki aðeins verður byggt á reitnum, heldur að lóðir fyrir frekari uppbyggingu stúdentaíbúða á háskólasvæðinu verði afhentar á næstu árum. Þessi sigur hefði ekki náðst ef ekki væri fyrir öfluga baráttu stúdenta fyrir uppbyggingu stúdentaíbúða.

Í komandi kosningum til háskólaráðs verður ekki aðeins kosið um stefnumál heldur bæði um hugmyndafræði og það fólk sem við viljum að leiði okkar baráttu. Við í Röskvu erum óhrædd við að beita pólitískum þrýstingi í kröfum okkar um jafnan rétt allra til náms. Við höfum sýnt hverju við getum náð fram með öflugri baráttu og nú þurfum við þinn stuðning til að halda henni áfram.

Höfundar eru í 1. og 2. sæti á lista Röskvu til háskólaráðs.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×