Skoðun

Tóm orð og prósentur

Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar
Undanfarna daga hefur lífleg umræða átt sér stað um almenningssamgöngur þar sem frambjóðendur og þingmenn hafa skrifað greinar og talað fjálglega. það er eðlilegt að við ræðum mikilvægi samgangna og ekki síst almenningssamgangna þar sem það er mikilvægt að öllu fólki bjóðist öruggar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur.

Það eru ekki allir sem geta eða vilja leggja í þá fjárfestingu að reka bíl, eða geta hjólað eða farið sinna ferða fótgangandi þó að allir þessir valmöguleikar eigi að standa til boða. Stjórn Strætó hefur á undanförnum árum lagt áherslu á að bæta þjónustu og ímynd Strætó, þjónustu sem eykur jöfnuð og bætir lífsgæði íbúa höfuðborgarsvæðisins. Ár frá ári fjölgar notendum Strætó, frá árinu 2011 til 2017 hefur ferðum fjölgað um 30%, þ.e. úr níu milljón ferðum á ári í 11,7 milljónir. Það eru vissulega vonbrigði að sjá ekki hækkun á hlutfallslegum fjölda en í könnun á notkun og viðhorfi til Strætó sést að ríflega 50% höfuðborgarbúa nota Strætó eitthvað þó einungis fjögur prósent geri það daglega.

Það er því ljóst að sú fjárfesting sem ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa farið í hefur skilað sér í fjölgun farþega en til að við náum markmiðum okkar þurfum við enn frekari fjárfestingu í almenningssamgöngum, t.a.m. Borgarlínu sem tryggir hraðar samgöngur milli helstu kjarna höfuðborgarsvæðisins. Reyndar er það svo að það er fjárhagslega hagkvæmari kostur að sú aukning á ferðum sem fyrirsjáanleg er með fjölgun fólks verði sem mest í almenningssamgöngum, og fátt mikilvægara fyrir þá sem kjósa einkabíl eða hjól sem fararmáta en að öflugar almenningssamgöngur séu valkostur, þar sem það fækkar bílum á ferð.

Fyrir okkur öll bætir það loftgæði, eykur öryggi, minnkar hávaðamengun og skapar betra samfélag, samfélag þar sem allt fólk getur ferðast saman á umhverfisvænan og hagkvæman hátt. Á venjulegum degi eru farnar um 45.000 ferðir með Strætó og ég held að allir geri sér grein fyrir að það munar um það á götum borgarinnar, á annatímum eru fullir vagnar frekar vandamál en tómir vagnar.

Höfundur er borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×