Arsenal sagt í viðræðum um kaup á Aubameyang frá Dortmund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2018 08:00 Pierre-Emerick Aubameyang fagnar marki með Dortmund. Vísir/Getty
Ensku blöðin Mirror og Daily Mail slá því bæði upp í morgun að Arsenal hafi mikinn áhuga á Pierre-Emerick Aubameyang, framherja Dortmund, og sé komið í viðræður við þýska félagið. Arsenal er að missa Sílemanninn Alexis Sanchez í þessum félagsskiptaglugga og þarf nauðsynlega á liðstyrk að halda í framlínuna. Arsenal gæti þurft að borga 53 milljónir punda fyrir leikmanninn. Dýrasti leikmaður Arsenal í dag er franski framherjinn Alexandre Lacazette sem félagið keypti á 52 milljónir punda síðasta sumar. Pierre-Emerick Aubameyang hefur spilað frábærlega með liði Borussia Dortmund en það hefur verið vandræði á honum á þessu tímabili og leikmaðurinn vill augljóstlega losna frá Þýskalandi. Aubameyang var ekki í hópnum hjá Dortmund um helgina en hann hefur skorað 13 mörk í 15 leikjum í þýsku deildinni á tímabilinu auk þess að skora 4 mörk í 6 leikjum í Meistaradeildinni. Dortmund hafði betur í kapphlaupinu við Arsenal þegar Aubameyang kom til þýska liðsins árið 2013 og þar átti einn Sven Mislintat mikinn þátt í því að Gabon maðurinn valdi Dortmund. Arsenal er nýbúið að ráða Sven Mislintat til starfa hjá sér og það þykir ýta undir líkurnar á því að liðið fái til sín Pierre-Emerick Aubameyang.
Þýski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira