Ungabarn lést eftir alvarlega áverka Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. janúar 2018 10:07 Sjúkraflutningamenn að störfum í Osló. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/EPA
Þriggja mánaða stúlkubarn sem flutt var alvarlega slasað á sjúkrahús í Osló í Noregi þann 27. desember síðastliðinn lést í gær. Faðir barnsins er grunaður um að hafa valdið dauða barnsins. Voru þau ásamt fjölskyldu sinni í fríi í Osló yfir jólin en barnið var flutt alvarlega slasað á sjúkrahús eftir að fjölskyldumeðlimir höfðu hringt eftir aðstoð. Sjúkrahúsið lét lögregluyfirvöld vita af málinu eftir að útskýringar föðursins á áverkum barnsins þóttu ekki trúverðugar miðað þá áverka sem barnið hafði hlotið. Var faðirinn handtekinn ásamt móður barnsins sem er þó ekki grunuð um að hafa átt þátt í dauða barnsins. Er faðirinn enn í haldi en í frétt Aftenposten segir að rannsóknir hafi leitt í ljós að eldri áverkar hafi einnig fundist á barninu.Barnið var með alvarlega heilaáverka þegar það var flutt á sjúkrahúsið í desember og segir lögregla að rannsókn málsins sé í hæsta forgangi. „Svo gróft ofbeldi gagnvart varnarlausu ungabarni er mjög alvarlegt og rannsókn málsins er í hæsta forgangi hjá lögreglunni. Við munum rannsaka málið af fullum þunga,“ er haft Sturla Henriksbø hjá lögreglunni í Osló í fréttatilkynningu. Eldri systkinum barnsins hefur verið komið fyrir í umsjá barnaverndaryfirvalda en lögreglan í Osló segir að rannsóknin beinist einkum að því hvort að barninu hafi verið beitt ofbeldi áður. Vonast lögregla til þess að eldri systkyni barnsins geti varpað ljósi á það, auk þess sem að lögreglan í Osló rannsakar málið í samvinnu við lögregluna í heimabæ fjölskyldunnar.
Norðurlönd Mest lesið „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira