Skemmtun sem sprengir alla skala Lovísa Arnardóttir skrifar 30. desember 2017 07:00 Hrund Ólöf Andradóttir, , prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði í Háskóla Íslands „
Þessi mengun er af stærðargráðu sem maður vill almennt ekki sjá í borgarumhverfi. Yfirleitt sjáum við ekki svona magn nema við mjög sérstakar aðstæður“ segir Hrund Ólöf Andradóttir, prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði. Hrund skrifaði í gær svar á Vísindavef Háskóla Íslands, ásamt Þresti Þorsteinssyni, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði, um mengun vegna flugelda um áramótin. Það sem skiptir miklu máli þegar svo mikið svifryk safnast saman, eru veðurskilyrðin. „Ímyndaðu þér að þú sért með lokað box og þú ert að búa til mengun inni í boxinu. Á móti því að vera inni í boxi, þar sem er mikil og góð loftræsting. Það er vandamálið. Þegar það eru hagstæð skilyrði til að skjóta og njóta þess að vera úti, þá eru rosalega óhagstæð skilyrði varðandi umhverfisgæðin okkar. Það eru tvær hliðar á málinu sem eru algerlega á öndverðum meiði,“ segir Hrund Ólöf. Að jafnaði varir mengun af völdum flugelda aðeins í skamma stund, en þessi mengun bætist hins vegar ofan á inntöku annarrar mengunar í borgarumhverfinu. „Það sem skiptir mestu máli er að mælingarnar sýna að svifryk mælist mjög hátt á þessu kvöldi, sérstaklega miðað við íbúðahverfi. Við erum með svifryksvandamál í borgarumhverfinu okkar. Það er algerlega vitað og er ekki séríslenskt vandamál. Það eru allir að reyna að minnka svifryk. En hér er svo iðja, sem býr til mikla mengun. Við værum eflaust ekki að tala um þetta, ef það væri ekkert svifryksvandamál fyrir. Ef þetta væri bara þetta staka kvöld. En við erum með stærri vandamál, sem við erum að bæta við.“
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira