Nýir leikarar fá mentor af sama kyni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. desember 2017 15:48 Þjóðleikhúsið hefur leitað til fagaðila til að vera leikhúsinu innan handar ef erfið mál koma upp. vísir/gva
Þjóðleikhúsið hefur birt á heimasíðu sinni umfjöllun um aðgerðir í leikhúsinu í kjölfar #metoo byltingarinnar. Þar kemur meðal annars fram að ákveðið hafi verið að nýir leikarar, sem komi til starfa við húsið, fái leiðbeinanda af sama kyni úr hópi fastráðinna leikara við húsið. Birtingin kemur í kjölfar aðgerða leikhúsanna og Listaháskóla Íslands sem tengja má #metoo byltingunni. Leikarar hafa verið reknir og kennarar stigið til hliðar við kennslu. „Ákveðið hefur verið að aukaleikarar (sem oft eru ungir) fái sérstakan trúnaðarmann við húsið í hverri uppfærslu. Athygli okkar beinist ekki síst að ungum konum við störf í hinum ýmsu deildum Þjóðleikhússins og verður staða þeirra skoðuð sérstaklega. Börn sem leika í sýningum við húsið hafa ávallt sérstakan umsjónaraðila.“ Þjóðleikhúsið hefur leitað til fagaðila til að vera leikhúsinu innan handar ef erfið mál koma upp að því er segir í tilkynningunni. Sami aðili mun framkvæma könnun meðal allra starfsmanna Þjóðleikhússins þar sem kannað verður algengi og alvarleiki kynferðislegrar áreitni og annarrar valdbeitingar. Í kjölfarið á þeirri könnun verður unnin aðgerðaáætlun um úrbætur og aðgerðaáætlun hússins vegna kynferðislegrar áreitni endurskoðuð. Tilkynningu Þjóðleikhússins má lesa í heild hér að neðan. Þar starfa rúmlega 300 manns þar af 100 í föstu starfi.Tilkynningin Þjóðleikhúsið starfar samkvæmt jafnfréttisáætlun og aðgerðaáætlun vegna kynferðislegrar áreitni, en einnig hefur verið gripið til sértækra aðgerða vegna þeirrar miklu umræðu sem hefur skapast í samfélaginu og kennd er við #MeToo. Þjóðleikhúsið hefur leitað til fagaðila til að vera leikhúsinu innan handar ef erfið mál koma upp. Sami aðili mun framkvæma könnun meðal allra starfsmanna Þjóðleikhússins þar sem kannað verður algengi og alvarleiki kynferðislegrar áreitni og annarrar valdbeitingar. Í kjölfarið á þeirri könnun verður unnin aðgerðaáætlun um úrbætur og aðgerðaáætlun hússins vegna kynferðislegrar áreitni endurskoðuð. Þjóðleikhúsið starfar samkvæmt jafnréttisáætlun sem er uppfærð reglulega og er markmið hennar að tryggja jafnrétti kynjanna, jafna stöðu og virðingu kvenna og karla innan leikhússins og að stjórnendur og starfsfólk sé meðvitað um mikilvægi þess að allir fái notið sín óháð kyni. Þá eru í áætluninni markmið og aðgerðir er varða innra starf Þjóðleikhússins. Yfirstjórn Þjóðleikhússins ber ábyrgð á að framfylgja jafnréttisáætlun leikhússins. Jafnréttisáætlun var síðast uppfærð í desember 2016. Þjóðleikhúsið hefur einnig starfað samkvæmt aðgerðaáætlun vegna kynferðislegrar áreitni í Þjóðleikhúsinu frá árinu 2013 og er sú áætlun öllum starfsmönnum aðgengileg á innra neti leikhússins. Þar er skilgreining á því hvað kynferðisleg áreitni er, hvernig hún getur birst og eru raktar verklagsreglur þegar grunur leikur á kynferðislegri áreitni, bæði eftir óformlegri og formlegri málsmeðferð. Ítrekuð er skylda Þjóðleikhússins að kanna mál til hlítar, og stefnt er að því að hinir ábyrgu verði látnir bera ábyrgð og þolendum sé veittur stuðningur. Stuðningur við þolendur taki mið af því hversu alvarleg kynferðislega áreitnin var. Ef starfsmaður er að ósekju ásakaður um að hafa áreitt einhvern kynferðislega kann hann að hafa þörf fyrir sérstaka aðstoð. Innan hverrar uppfærslu er trúnaðarmaður leikara. Við húsið er einnig trúnaðarmaður annars starfsfólks. Fólk getur einnig leitað til jafnréttisfulltrúa, öryggisfulltrúa, formanns leikarafélagsins, deildarstjóra og beint til leikhússtjóra sem og trúnaðarmanna innan hvers stéttarfélags. Þetta eru ferlar sem hafa verið í gangi en gert hefur verið sérstakt átak í að kynna starfsfólki þá betur. Í kjölfarið á #MeeToo var haldinn fundur með öllu starfsfólki. Í kjölfar #tjaldiðfellur var haldinn fundur með öllum leikurum hússins og annar fundur með öðru starfsfólki. Fundir hafa verið haldnir með öllum deildarstjórum með það að markmiði að leiða fram öll áreitnimál sem kunna að hafa legið í láginni í Þjóðleikhúsinu. Ákveðið hefur verið að nýir leikarar sem koma til starfa við húsið fái mentor/leiðbeinanda af sama kyni úr hópi eldri fastráðinna leikara við húsið. Ákveðið hefur verið að aukaleikarar (sem oft eru ungir) fái sérstakan trúnaðarmann við húsið í hverri uppfærslu. Athygli okkar beinist ekki síst að ungum konum við störf í hinum ýmsu deildum Þjóðleikhússins og verður staða þeirra skoðuð sérstaklega. Börn sem leika í sýningum við húsið hafa ávallt sérstakan umsjónaraðila. Það er mikil samfélagsleg framför að nú ríkir samhugur um að kynferðisleg áreitni og annað ofbeldi líðist ekki og um það sé talað og að það skuli afhjúpað. Þá væri það til góðs ef þessi hugarfarsbreyting myndi verða til þess að einhver sem hefur orðið fyrir áreitni eða ofbeldi og byrgt inni geti nú leitað aðstoðar og stuðnings. Það er samfélagsleg skylda okkar að styðja þá einstaklinga og vernda og leiða mál að sanngjarnri og heillavænlegri niðurstöðu. Markmiðið er að Þjóðleikhúsið sé góður og öruggur vinnustaður þar sem komið er fram við hvern af virðingu, sanngirni og nærgætni. Ef einhver brýtur gegn öðrum ber hinn brotlegi ábyrgð á gerðum sínum, ekki sá sem fyrir brotinu verður. Við hin berum ábyrgð á því að vernda hvert annað og að láta ekki slík brot afskiptalaus. Í Þjóðleikhúsinu starfa rúmlega 300 einstaklingar og eru um 100 í föstu starfi.
Menning MeToo Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Sjá meira