Banna fóstureyðingar þegar Down-heilkenni greinist Kjartan Kjartansson skrifar 22. desember 2017 17:58 Andstæðingar fóstureyðinga í Ohio unnu sigur í dag. Vísir/AFP
Læknar í Ohio-ríki í Bandaríkjunum mega ekki lengur eyða fóstri þegar Down-heilkenni greinist í því. John Kasich, ríkisstjóri Ohio og repúblikani, skrifaði undir lög þess efnis í dag en tvö önnur ríki Bandaríkjanna hafa samþykkt sambærileg lög. Samkvæmt lögunum gætu læknar átt yfir höfði sér opinbera ákæru fyrir refsivert athæfi ef þeir eyða fóstrum í þessum tilfellum. Þá gætu þeir misst lækningaleyfi sín, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Andstæðingar fóstureyðinga fögnuðu staðfestingu laganna en fylgjendur þeirra segja að þau muni hafa „hrollvekjandi áhrif“ á samskipti lækna og skjólstæðinga þeirra. Sambærileg lög hafa verið samþykkt í Norður-Dakóta og Indíana en alríkisdómari í síðarnefnda ríkinu felldi þau úr gildi þar. Taldi dómstóllinn að ríkið hefði enga heimild til þess að takmarka á hvaða forsendum konur hefðu rétt á að fara í fóstureyðingu.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Svandís segir nei Innlent Fleiri fréttir „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Sjá meira