2017: Árið sem hafnaði leyndarhyggju Rut Einarsdóttir og Hallgrímur Óskarsson skrifar 29. desember 2017 11:39 Meira gagnsæi og minni leyndarhyggju, var sú krafa frá almenningi sem litaði flesta þætti mannlífsins á árinu 2017. Þess vegna má segja að tíðarandinn á Íslandi og mjög víða annarsstaðar í veröldinni gagnvart gagnsæi og leyndarhyggju hafi gjörbreyst. Þetta kemur skýrt fram bæði í þeim byltingum sem hafa átt sér stað í samfélaginu í ár, sem og í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Íslands sem tók við þann 1. desember 2017. Þar kom orðið „gagnsæi“ kom fyrir í alls átta skipti, ólíkt stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar frá 2016 þar sem orðið „gagnsæi“ kom aðeins fyrir aðeins einu sinni, rétt eins og hjá ríkisstjórninni þar á undan. Nú segir fjöldi tiltekinna orða litla sögu um væntingar og efndir, en er þó ákveðin vísbending um það hvort ákveðin mál kallist á við tíðarandann hverju sinni. Þannig má alveg álykta sem svo að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætli sér að beita sér fyrir meira gagnsæi í stjórnsýslu og við lagasetning á Alþingi en fyrri ríkisstjórnir hafa gert. Ný ríkisstjórn sýnir þannig fyrst og fremst að hún virðist vera í tengslum við samtímann og hlusta á þær raddir sem tala í samfélaginu. Leyndarhyggjan sjálf, andstæða gagnsæis, hefur líklega aldrei fundið annan eins mótbyr eins og árið 2017. Rekja má fall síðustu ríkisstjórnar til trúnaðarbrests og leyndarhyggju, nánar til tekið yfir máli um uppreisn æru kynferðisbrotamanna. Andstöðu gegn leyndarhyggju er þó ekki aðeins að finna í stjórnmálum, viðskiptum og stjórnsýslu, heldur má finna kröfuna um að leyndarhyggju skuli hætt á flestum, ef ekki öllum, sviðum samfélagsins. Og svo er það stóra byltingin gegn leyndarhyggju: #MeToo-byltingin. Í #MeToo byltingunni sem spratt upp í kjölfar stöðuuppfærslu leikkonunnar Alyssa Milano á Twitter, þann 15. október 2017, má segja að hernaður gegn leynd, ofbeldi, kynferðislegri kúgun og gömlum hefðum og venjum hafi hafist fyrir alvöru. Þá sýndu konur um allan heim samstöðu með því að segja sínar sögur af kynferðislegri áreitni í kjölfar kynferðisbrotamála, fyrst gegn leikstjóranum Harvey Weinstein, en síðar gegn fjölmörgum öðrum þekktum karlmönnum í lista- og menningarlífi margra Vesturlanda. Íslenskar konur úr öllum stéttum og kimum þjóðfélagsins hafa einnig tekið þátt í #MeToo-byltingunni. Konur úr stjórnmálum, leikhúsilífi, heilbrigðisstéttum, vísindasamfélaginu, konur í íþróttum og úr mörgum öðrum hópum hafa stigið fram og sagt sögur sem leynd hefur hvílt yfir þar til nú. Þessar konur hafa birt upplýsingar sem sýna að kynferðislega áreitni og leyndarhyggjan sem henni fylgir er til á ótrúlegustu sviðum samfélagsins. Konur hafa hafnað því að halda inni skömminni sem fylgir leyndinni, og saman hefur samfélagið hafnað leyndarhyggjunni. Merki um þetta sjást þegar þeim fjölmörgu dæmum af skilyrðislausri afsögnum margra þekktra og valdamikilla manna eru bæði af þeim sjálfum (gerendunum) og samfélaginu öllu talin svo sjálfsögð að ekki þarf að ræða það frekar. Þetta er dæmi um breyttan tíðaranda, sem krefst þess að leynd sé vikið á brott og að hverskyns ofbeldi og að óviðurkvæmleg framkoma sé ekki liðin í neinni mynd. Margir segja að #MeToo-bylting sé aðeins nýhafin og að margar ótrúlegar sögur eigi eftir að losna undan krumlum leyndarinnar og komast í dagsljósið á næstu mánuðum og árum. Einnig má velta fyrir sér hver hliðaráhrifin af #MeToo-byltingunni verða. Hér er því spáð að stóru áhrifin muni snúast um það að leyndarhyggju sé hafnað í hvaða mynd sem er og á hvaða sviðum þjóðlífsins sem er. Það hefur nú þegar komið í ljós að almenningur líður ekki lengur leyndarhyggju, og má því spá að það færist frekar í aukana svo að ekki lengur líðist leyndarhygga af neinu tagi, sérstaklega gagnvart málum sem snerta samfélagið. Hægt er að segja að sú krafa verði upp að upplýsingaleynd verði mjög víkjandi þáttur í samfélaginu, hvort sem um er að ræða samskipti kynjanna, samninga fyrirtækja, eða stjórn landsins. Auðvelt er þannig að hugsa sér að #MeToo-byltingin sé aðeins byrjunin á einhverju mjög gríðarstóru, þó að áhrif hennar séu nú þegar orðin söguleg. Segja má að #MeToo-byltingin sé í raun upphafið að því að leyndarhyggju sé hafnað á öllum stigum þjóðfélagsins og að gagnsæi verði í æ ríkara mæli talinn grundvöllur allra mála er varða samfélagið í heild. Hægt er að lesa meira um málefni er varða spillingu á www.gagnsaei.is og Facebook síðu samtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hallgrímur Óskarsson Mest lesið Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar