Helga hættir í Kastljósi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2017 13:11 Helga Arnardóttir hverfur af sjónvarpsskjám landsmanna í bili að minnsta kosti. Vísir/Valli
Sjónvarpskonan Helga Arnardóttir hefur verið ráðin yfirritstjóri útgáfufélagsins Birtíngs. Þá mun hún ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu. Helga hverfur frá störfum á RÚV þar sem hún hefur verið í Kastljósi frá árinu 2014. Hún er annar af tveimur umsjónarmönnum Kastljóss sem hverfur til annarra verka á skömmum tíma. Baldvin Þór Bergsson var á dögunum ráðinn dagskrárstjóri númiðla og Rásar 2. Ekki liggur fyrir hver taka við stjórnartaumunum í Kastljósi en Lára Ómarsdóttir hefur fyllt í skarðið í þættinum undanfarið. Nokkrar breytingar urðu á Kastljósi í haust þegar fréttaskýringaþátturinn Kveikur hóf göngu sína. Þóra Arnórsdóttir og Helgi Seljan yfirgáfu Kastljós og fóru í Kveikisteymið en Helga varð eftir í Kastljósi ásamt Baldvini. Kveikur tók yfir Fésbókarsíðu Kastljóss, sem nú er ekki til, og heitir nú Kveikur.Baldvin og Helga hverfa á næstunni af sjónvarpsskjám landsmanna, í bili.RÚV-kynningMikil áskorun fyrir HelguÍ tilkynningu á vef Mannlífs segir að Helga muni ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu. Birtíngur opnaði nýverið lífstílsvefinn mannlif.is, sem er sameiginlegur vefur allra miðla félagsins. Hún muni starfa náið með núverandi ritstjórum tímarita Birtíngs, leiða aukið samstarf ritstjórna og marka ritstjórnarstefnu Mannlífs og mannlif.is. Fríblaðinu er dreift inn á öll heimili á höfuborgarsvæðinu og er aðgengilegt til niðurhals á vefnum. „Ég hlakka til að hefja störf hjá Birtíngi og lít á það sem mikla áskorun að takast á við prentmiðla á þessum tímum og finna þeim tryggan farveg í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi,“ segir Helga. „Það verður spennandi verkefni að leiða nokkur af vinsælustu tímaritum landsins inn á nýjar brautir í hinum stafræna heimi og koma með ferskt fríblað mánaðarlega um brýn samfélagsmál, sem varða okkur öll og málefni líðandi stundar.” Helga hefur starfað í fréttaskýringaþættinum Kastljósi hjá Ríkisútvarpinu frá árinu 2014, og auk þess hefur hún framleitt og haft umsjón með heimildarþættinum Meinsærið um rangar sakargiftir í Geirfinnsmálinu og fjögurra þáttaröð um leikferil Eddu Björgvinsdóttur leikkonu. Helga starfaði í 7 ár á Stöð 2 sem fréttamaður í sjónvarpi og útvarpi, vaktstjóri, fréttaþulur og dagskrárgerðarmaður í Íslandi í dag. Á Stöð 2 hafði hún umsjón með þáttunum um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, Mannshvörf á Íslandi og Óupplýst lögreglumál. Hún hefur starfað við blaðamennsku allt frá árinu 2002 og hóf störf sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu 2004, þar til hún gekk til liðs við Stöð 2. Hún hlaut MA gráðu í International Journalism frá City University of London árið 2010 með áherslu á sjónvarps-og rannsóknarblaðamennsku. Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði og frönsku frá Háskóla Íslands og stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík. Gunnlaugur Árnason, stjórnarformaður Birtíngs, segir Helgu búa yfir mikilvægri reynslu á mörgum sviðum fjölmiðlunar. „Hjá Birtíngi starfar hæfileikaríkt fólk og Helga mun enn frekar styrkja ritstjórnarslagkraft félagsins.“ Helga hefur störf hjá Birtingi 2. janúar næstkomandi.
Fjölmiðlar Ráðningar Tengdar fréttir Þau voru ráðin í stjórnunarstöður hjá RÚV Baldvin Þór Bergsson verður dagskrárstjóri númiðla og Rásar 2, Steinunn Þórhallsdóttir framkvæmdastjóri framleiðslu og ferla og Birgir Sigfússon framkvæmdastjóri miðla. 1. desember 2017 15:34 Enn að jafna sig eftir kosningarnar Baldvin Þór Bergsson, einn af umsjónarmönnum Kastljóss og kosningasjónvarps RÚV, er enn að jafna sig eftir törn síðustu helgar. Baldvin hefur nóg fyrir stafni, en hann eignaðist sitt annað barn í september. 3. nóvember 2017 10:00 Helga Arnar sviptir hulunni af gjörspilltum írskum stjórnmálamönnum "Ef þú bregst mér þá mun ég lýsa yfir stríði,“ sagði bæjarfulltrúi í írska bænum Monaghan við Helgu Arnardóttur. 11. desember 2015 11:33 Mest lesið Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira
Þau voru ráðin í stjórnunarstöður hjá RÚV Baldvin Þór Bergsson verður dagskrárstjóri númiðla og Rásar 2, Steinunn Þórhallsdóttir framkvæmdastjóri framleiðslu og ferla og Birgir Sigfússon framkvæmdastjóri miðla. 1. desember 2017 15:34
Enn að jafna sig eftir kosningarnar Baldvin Þór Bergsson, einn af umsjónarmönnum Kastljóss og kosningasjónvarps RÚV, er enn að jafna sig eftir törn síðustu helgar. Baldvin hefur nóg fyrir stafni, en hann eignaðist sitt annað barn í september. 3. nóvember 2017 10:00
Helga Arnar sviptir hulunni af gjörspilltum írskum stjórnmálamönnum "Ef þú bregst mér þá mun ég lýsa yfir stríði,“ sagði bæjarfulltrúi í írska bænum Monaghan við Helgu Arnardóttur. 11. desember 2015 11:33