Fjölskyldudrama Geimgenglanna – VIII kafli Þórarinn Þórarinsson skrifar 14. desember 2017 07:00 Loksins komið að frumsýningu áttunda kafla geimóperunnar sem kennd er við Star Wars.
Kvikmyndir Stjörnustríðs-aðdáendur um allan heim hafa beðið þessa dags í óbærilegri spennu í tvö ár. Star Wars: Episode VIII – The Last Jedi er frumsýnd í dag og heldur áfram þar sem frá var horfið í Episode VII: The Force Awakens 2015. Sjöunda kafla lauk þegar nýja hetjan okkar, Rey, fann loks Loga Geimgengil á afskekktri plánetu þar sem hann dvelur í sjálfskipaðri útlegð eftir að hafa klúðrað Jedi-þjálfun systursonar síns með þeim ósköpum að hann varð öflugasta handbendi myrkraaflanna frá því að afi hans, Svarthöfði, var og hét. Mátturinn er með Rey sem heldur nú áfram að þróa nýfundna hæfileika sína með aðstoð Loga sem hefur víst ekki séð annan eins kraft frá því hann missti frænda sinn yfir til hins illa.The Last Jedi er þriðja Stjörnustríðsmyndin sem Disney framleiðir eftir að hafa keypt réttinn á gerð myndanna af hugmyndafræðingi Star Wars, George Lucas, fyrir upphæð sem nemur fjárlögum íslenska ríkisins í hundraðasta veldi. Eða því sem næst. Lucas hafði þá gert tvo þríleiki um hina brotnu og meðvirku Skywalker-fjölskyldu. Sá fyrri sem hófst með Star Wars 1977 er enn í hávegum hafður en sá síðari, sem hverfðist um fall ættföðurins, Anakins, sem reis upp sem Svarthöfði, olli umtalsverðum vonbrigðum. Síðan Disney tók við hefur hins vegar gleðin ein verið við völd hjá Stjörnustríðsnördum allra landa. Fjölskyldudramanu var ýtt í gang með látum með The Force Awakens, í fyrra kom svo sjálfstæða sagan Star Wars: Rogue One, og nú vindur meginsögunni áfram. The Force Awakens kallaðist svo hátt á við fyrstu myndina frá 1977 að um hálfgildings endurgerð var að ræða frekar en nýtt upphaf. Lucas fylgdi Star Wars eftir með The Empire Strikes Back 1980. Tónninn í þeirri mynd var mun myrkari og hún er almennt og óumdeilt talin besta myndin í bálkinum eins og hann leggur sig. Sömu lögmál virðast gilda um The Last Jedi. Þegar hefur spurst út að í henni magnist drunginn í sögunni og þeir sem hafa séð hana keppast við að ausa hana lofi og fyrir almenna frumsýningu stendur hún í 94% á vefnum Rotten Tomatoes sem tekur saman meðaltal birtra dóma. Semsagt, brakandi fersk. Árið 2017 er, fyrir utan þessa frumsýningu, stórt ár í sögu Star Wars þar sem þann 25. maí voru 40 ár liðin frá frumsýningu fyrstu myndarinnar. Íslendingar máttu þó engjast í forvitni býsna lengi því myndin var ekki frumsýnd í Nýja bíói fyrr en í október 1978. Í millitíðinni fengu íslensk börn að kynnast öllum þeim furðuverum sem birtast í myndinni á límmiðum og myndum í Cocoa Puffs- og Cheerios-pökkum. Þegar myndin loksins kom var þeim Loga Geimgengli, Hans Óla, Lilju Ósk prinsessu, Loðni og öllum hinum tekið fagnandi. Helstirnið ógurlega, sem er sko ekkert tungl heldur geimstöð, kallaði fram hroll eins og illmennið Svarthöfði. Annar eins skúrkur hafði ekki sést áður. Síðar kom á daginn að undir svartri brynjunni engdist sundurtætt sál í togstreitu milli góðs og ills. Allar aðalpersónur gamla þríleiksins komu fyrst aftur saman í The Force Awakens frá því þeim tókst að gera út af við keisaraveldi hins illa í The Return of the Jedi 1983. Þessara endurfunda hafði verið beðið í rúma þrjá áratugi og tilfinningar áhorfenda eru því eðlilega þandar til hins ýtrasta núna þegar gallaða Geimgengla-fjölskyldan kallar enn á ný hörmungar yfir heila stjörnuþoku með vandamálum sínum. thorarinn@frettabladid.is
Birtist í Fréttablaðinu Star Wars Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Sjá meira