Helgi í Góu beinir herferð að lífeyrissjóðunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. nóvember 2017 06:05 Myndbandið er hádramatískt. Skjáskotið
Helgi Vilhjálmsson, jafnan kenndur við Góu, hóf í gær auglýsingaherferð og undirskriftasöfnun þar sem hann skorar á lífeyrissjóðina að hugsa orðið „arðsemi“ upp á nýtt. Herferðin ber nafnið Okkar sjóðir og leit fyrsta auglýsingin, sem sjá má hér að neðan, dagsins ljós í gær. Þar er fylgst með lífshlaupi pars sem fær svo ekki að búa saman í ellinni vegna veikinda konunnar. „Í þetta skiptið beinum við kastljósinu að loforðinu sem við gefum við altarið: „Í blíðu og stríðu þar til dauðinn skilur okkur að,“ sem er í raun og veru „Í blíðu og stríðu þar til heilsan skilur okkur að“, þar sem fólk fær ekki að búa með maka sínum ef makinn þarf umönnun á yfirfullu hjúkrunarheimili,“ er haft eftir Helga í tilkynningu. Fasteignir góð fjárfesting„Fjöldi eldra fólks er því á stöðugu ferðalagi á milli hjúkrunarheimilisins og eigin heimilis með tilheyrandi kostnaði og vanlíðan. Lífeyrissjóðirnir geta komið í veg fyrir þann skilnað. Hvað er arðsemi í raun og veru og til hvers borgum við í lífeyrissjóð? Gott ævikvöld er það sem við vonumst eftir, eða eins gott og kostur er og heilsan leyfir, en að vera aðskilin er ekki það sem eldra fólk óskar sér. Í það ættu fjármunirnir að fara. Fasteignir eru góð fjárfesting. Fasteign sem þjónar öldruðu fólki betur en hægt er að gera núna er besta fjárfestingin,“ segir Helgi ennfremur um nýju herferðina. Hægt er að skora á lífeyrissjóðina um breytta fjárfestingastefnu á síðunni Okkarsjodir.is.
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira