Forseti bæjarstjórnar Sandgerðis fagnar sameiningunni Nadine Guðrún Yaghi skrifar 12. nóvember 2017 11:30 Ólafur Þór Ólafsson er forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar. Vísir/Anton/Stefán
Sveitarfélögin Garður og Sandgerði verða sameinuð og tekur hið sameinaða sveitarfélag til starfa í maí á næsta ári. Íbúar sveitarfélaganna kusu um sameininguna í gær og lágu úrslit fyrir laust upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi. Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Sandgerði, kveðst fagna niðurstöðunni. „Næsta vor verður kosið til bæjarstjórnar í nýju sveitarfélagi, sem er það næststærsta á Suðurnesjum. Sveitarfélagið verður sterkara og hefur betri burði til að veita betri þjónustu og standa sterkt að baki þeim framkvæmdum sem sveitarfélagið kemur til með að þurfa að ráðast í,“ sagði Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Sandgerði. Íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu sameininguna. Í Garði samþykktu 71,5 prósent íbúa sameininguna og í Sandgerði var sameiningin samþykkt með rúmum 55 prósent atkvæða. Kjörsókn var rúm 50 prósent eða 53 prósent í Garði og 55,2 prósent í Sandgerði. Níu manna bæjarstjórn verður kosin í maí á næsta ári og í framhaldinu myndi hið nýja sveitarfélag taka til starfa. Íbúar munu þá einnig fá að kjósa um nafn á nýju sveitarfélagi.
Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira