Kosningunni Hverfið mitt lýkur á miðnætti: Íbúar í Reykjavík ráðstafa 450 milljónum í framkvæmdir Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 19. nóvember 2017 10:09 Pétanque-völlur var settur í Gufunes eftir að íbúar í Reykjavík völdu hann í kosningunni Hverfið mitt. Reykjavíkurborg
Í dag er síðasti dagurinn í kosningunni Hverfið mitt, það sem íbúar í Reykjavík ráðstafa alls 450 milljónum í framkvæmdir í hverfunum. Kosningu lýkur á miðnætti á síðu verkefnisins Hverfið mitt. Það eru 218 hugmyndir sem hægt er að velja á milli í ár, og næstum 10.000 manns hafa þegar kosið. Kosningin er bindandi, og það sem hlýtur kosningu núna verður framkvæmt af borginni næsta sumar. Allir sem hafa lögheimili í Reykjavík og eru fæddir árið 2001 eða fyrr geta tekið þátt og eru íbúar hvattir til þess að taka þátt í þessari ákvörðun. Síðustu ár hafa íbúar ráðstafað fjármagni í gegnum þessa kosningu í mörg áhugaverð og skemmtileg verkefni. Má þar nefna Pétanque-völl við Gufunesbæ og á Klambratúni, frisbígolfvöll á Klambratúni og í Leirdal, hringtorg í Hraunbæ, við Glæsibæ, á Kirkjusandi og á Rauðarárstíg, Vatnsrennibraut í sundlaug Grafarvogs, ljóð á gangstéttum í Vesturbæ sem birtast í rigningu og fleira. Á meðal þess sem kosið er um í ár má finna hugmyndir um leiktæki, útiæfingatæki, lýsingu, körfuboltakörfur, bekki og ruslafötur, listaverk, hjólabraut, gönguleiðir, hraðahindranir, upplýsingaskilti, sparkvellir, hundagerði, parkour svæði drykkjarfonta og margt fleira sem væri hægt að fjármagna eftir þessa kosningu. Íbúar í Reykjavík geta kosið HÉR.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira