„Af hverju var Natan drepinn? Um það hverfist verkið. Við setjum fram hugmyndir okkar um orsakirnar en búum ekki til línulega frásögn eða niðurstöðu. Fólk fær því ekki svarið, heldur bara tilgátur um hvað hafi gerst í aðdraganda morðanna. Kannski gerðist það allt, kannski bara brot af því,“ segir Marta þegar hún er spurð hvaða póll sé tekinn í hæðina í sýningunni en að henni stendur leikhópurinn Aldrei óstelandi og bak við hann eru Marta og Edda Björg Eyjólfsdóttir sem er á sviðinu.
„Höfundur verksins er Salka Guðmundsdóttir,“ tekur Marta fram. „Við notum bæði frumheimildir sem við ritskoðum ekki og skáldtextann hennar. Hún skrifar inn tilgáturnar sem senurnar byggjast á. Svo höfum við unnið þetta öll saman. Stefán Hallur Stefánsson leikur Natan, Kjartan Darri Kristjánsson Friðrik og Birna Rún Eiríksdóttir Sigríði bústýru.“

„Natan er fórnarlamb og gerandi en er ekki til frásagnar um morðið eða aðdraganda þess.
Verkið er mótað af stuttum senum og dálitlu dansleikhúsi. Eins og gerist með sýningar sem unnar eru frá grunni tekur það á sig eigin mynd, eitthvað gerist og maður fer að elta það, þá eru kannski önnur atriði sem ekki passa lengur.
Svona er sköpun. En þó mýtan um ástarsamband milli Agnesar og Natans hafi verið lífseig er ekki mikil rómantík í okkar verki. Við getum alveg sagt það hreint út.“