Fótbolti

Arnór skoraði og Birkir Már lagði upp í Íslendingaslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Arnór Smárason á skotskónum
Arnór Smárason á skotskónum visir/getty
Birkir Már Sævarsson, Arnór Smárason og félagar í Hammarby höfðu betur gegn Kristni Steindórssyni, Kristni Frey Sigurðssyni og félögum í Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Carlos Moros kom Sundsvall yfir snemma leiks en Sander Svendsen jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé eftir undirbúning Birkis Más.

Hammarby reyndust svo sterkari í síðari hálfleiknum og unnu öruggan 1-4 sigur. Fjórða mark Hammarby var skorað af Arnóri Smárasyni en það gerðist í uppbótartíma.

Arnór, Birkir Már og Kristinn Steindórsson léku allan leikinn en Kristinn Freyr kom inn af bekknum á 78.mínútu.

Hammarby skaust með sigrinum upp í sjöunda sæti Allsvenskunnar en Sundsvall er í fjórtánda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×