Þegar Hamilton komst í níunda sæti á 68. hring var ljóst að Vettel þyrfti að vinna keppnina til að halda voninni á lífi, það tókst Þjóðverjanum ekki og breski ökumaðurinn því orðinn heimsmeistari ökumanna í ár. Hann er þar með orðinn sá breski ökumaður sem hefur unnið flesta titla, fjóra. Sir Jackie Stewart hafði deilt metinu með Hamilton til þessa.
Ræsingin var dramatísk, Verstappen tók forystuna en Hamilton og Vettel lentu í samstuði og Hamilton sprendi dekk, Vettel skemmdi framvæng.
Báðir komu inn á þjónustusvæðið strax á fyrsta hring.Vettel og Hamilton fengu báðir hörðustu dekkin undir bílinn og ætluðu sér að keyra til loka. Vettel var 18. þegar hann kom út og Hamilton síðastur.
Hamilton var kominn í talstöðina innan skamms og talaði um að Vettel hefði keyrt viljandi á sig. Atvikið var tekið til skoðunar af dómurum keppninnar. Ekkert var þó talið athugunarvert við atburðarásina.

Stafrænn öryggisbíll var virkjaður á brautinni á 32. hring þegar Toro Rosso bíll Brendon Hartley bilaði. Það var þá þriðji Renault mótorinn sem bilaði í keppninni.
Næstum allir ökumenn í keppninni tóku þjónustuhlé þegar stafræni öryggisbíllinn var við völd. Það spilaðist upp í hendurnar á Hamilton sem var á leiðinni að verða heimsmeistari ef Vettel næði ekki fyrsta eða öðru sæti. Allir fyrir framan Vettel fengu raunar frítt þjónustuhlé. Hann hefði þurft að njóta góðs af hléum annarra ef hann hefði ætlað að eiga möguleika á efstu tveimur þrepum verðlaunapallsins.
Red Bull liðið óskaði þess við Verstappen að hann myndi slaka aðeins á. Verstappen vissi sennilega ekki að Renault mótorarnir væri að gefa sig um alla braut, liðið hafði þær upplýsingar og var sennilega að reyna að koma því til skila til Verstappen án þess að gera hann stressaðan.
Hamilton náði í stigasæti með því að taka fram úr Felipe Massa á 58. hring. Á meðan var Vettel að taka fram úr Esteban Ocon til að koma sér upp í fjórða sæti fyrir aftan Kimi Raikkonen, liðsfélaga sinn.
Hamilton tók svo níunda sætið af Fernando Alonso eftir stórkostlega baráttu við Spánverjann. Þar með var ljóst að Hamilton yrði heimsmeisari ökumanna.