Stuðningur við ríkisstjórnina við frostmark Jakob Bjarnar skrifar 11. október 2017 13:46 Ekki er að sjá að Íslendingar sjái mikið eftir þeirri ríkisstjórn sem nú er að hverfa frá völdum. visir/anton
Samkvæmt nýrri könnun MMR, sem var að birtast, eru einungis 22 prósent sem styðja ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Sem kannski skiptir ekki miklu máli því hún er að hverfa frá völdum. En, á lokametrunum nær ríkisstjórnin að auka óvinsældir sínar en í síðustu könnun mældist fylgi við hana 22,5 prósent. Könnunin var framkvæmd dagana 6. til 11. október 2017 og var heildarfjöldi svarenda 966 einstaklingar, 18 ára og eldri. Samkvæmt könnuninni mælast Vinstrihreyfingin grænt framboð stærst eða með 22 prósent, sama og ríkisstjórnin mælist með. Sjálfstæðisflokkurinn kemur fast á hæla Vg með 21 prósent fylgis.Í tilkynningu frá MMR segir að bæði Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað fylgi frá síðustu mælingu sem lauk 28. september 2017. Þá mældust Vinstri græn með 24,8% fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn með 23,5% fylgi. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 13,0 prósent en það er aukning upp á 3 prósentustig frá síðustu mælingu. Athygli vekur að fylgi Miðflokksins mælist með tæp 11 prósent, stærri en Píratar, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkurinn. Þessi flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hefur vart náð að kynna sín mál og eru að leggja fram framboðslista nú um mundir. Stuðningur við önnur framboðin er sem hér segir: Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,0% og mældist 10,4% í síðustu könnun. Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,7% og mældist 7,3% í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist nú 10,5% og mældist 10,0% í síðustu könnun. Fylgi Flokks fólksins mældist nú 7,4% og mældist 8,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknar mældist nú 5,9% og mældist 6,4% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 4,2% og mældist 2,5% í síðustu könnun. Fylgi Viðreisnar mældist nú 3,6% og mældist 4,9% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist 1,8% samanlagt.
Kosningar 2017 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Sjá meira