Daðrið við útlendingaandúðina
Stærsta breytan frá þeirri könnun og svo þessari nýjustu er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokkurinn. Hann mælist nú með sama fylgi og best lét þegar Flokkur fólksins var að mælast með tæp 11 prósent. Svo virðist sem Sigmundur Davíð sé að slökkva í vonum Ingu um þingmennsku.Eiríkur Bergmann, prófessor og stjórnmálafræðingur, segir svarið við því hvers vegna fylgið fór tiltölulega einfalt.
„Flokkur fólksins fékk stóran hluta af sínu fylgi út á daður við útlendingaandúð. Formaðurinn hefur síðan tekið til við að vinda ofan af þeirri ásýnd flokksins. Og í raun þvertekið fyrir þann þjóðernispopúlisma. Þar með brast grundvöllurinn fyrir stuðningi margra þeirra sem áður héldu að flokkurinn væri vettvangur sinna sjónarmiða.“
Miðflokkurinn hrifsar til sín fylgi Ingu
Eiríkur segir blasa við að Miðflokkurinn hafi tekið drjúgan skerf þess fylgis.„Sigmundur Davíð hefur áður veitt þjóðernissinnuðum skoðunum farveg þótt hann hafi ekki gert út á þann akur enn sem komið er að þessu sinni.“
Eiríkur bendir einnig á að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi stigið inní þetta mengi og hugsanlega hafi einhverjir þeir sem aðhyllast þessi sjónarmið hallað sér að Sjálfstæðisflokknum. Ásmundur segist finna fyrir miklum stuðningi. Hins vegar sé Íslenska þjóðfylkingin, sem hefur lent í talsverðum hremmingum í þessum kosningum, og mælist vart í könnunum, alltof gróf, að sögn Eiríks, til að fólk vilji leggja lag sitt við hana.
Átök við erlend öfl
En, hvað er það við Sigmund sem er þeim sem eru opnir fyrir slíkum sjónarmiðum svo þekkilegt?„Það er held ég arfleifð hans úr formannstíð sinni í Framsóknarflokknum, þar sem endrum og sinnum var daðrað við þjóðernispopúlísk sjónarmið. En ég vil taka skýrt fram að hann hefur ekki gert það núna. Þetta er miklu fremur spurning um væntingar annarra til hans.“
Sigmundur og Miðflokkurinn leggja áherslu á það sem þjóðlegt er, til að mynda í slagorði sínu, Íslandi allt. Í yfirfærðri merkingu er auðvelt að túlka það sem einhvers konar einangrunarsjónarmið. Eða hvað?
„Hann er sá forystumaður í meginstraumi íslenskra stjórnmála sem hefur hvað mest sett þjóðernislegar áherslur í forgrunn og átt það til að stilla málum fram sem átökum á milli Íslands og erlendra afla.“
Eftir nokkru að slægjast
Erfitt er að segja til um það nákvæmlega hversu margir láti slík sjónarmið ráða afstöðu sinni í kjörklefanum.„Það er auðvitað ekki hægt að mæla það fullkomlega enda breytilegt eftir bæði jarðvegi og kúltívation. En flokkar sem fara í þennan leiðangur hafa náð upp í 12 prósenta aukningu út á daður við útlendingaandúð.“
Þannig að segja má, með nokkrum einföldunum, að Sigmundur Davíð sé að slökkva í vonum Ingu Sæland um þingmennsku?
„Hann á allavega drjúgan hluta í því, já.“