„Það er magnað afrek hjá liðinu að ná í fyrsta og þriðja sæti hér. Guð blessaði mig í dag með þessu atviki Ferrari. Daniel [Ricciardo] barðist vel í dag. Ég er feginn að við náðum að landa þessu. Um leið og fór að rigna vissi ég að ég myndi vinna,“ sagði Hamilton sem vann í dag sína þriðju keppni í röð.
„Ég kann vel við mig á þessari braut. Okkur skorti aðeins upp á hraðan í dag sem við höfðum á föstudag,“ sagði Daniel Ricciardo sem varð annar á Red Bull.
„Auðvitað var þetta næstum fullkomin niðurstaða fyrir okkur úr því sem komið var. Það er enn nóg af tækifærum til að taka fram úr Sebastian [Vettel] í stigakeppni ökumanna,“ sagði Valtteri Bottas sem tókst að landa þriðja sætinu á Mercedes.
„Fyrsta beygjan var ótrúleg og endirinn á keppninni var magnaður. Við erum greinilega á réttri leið. Lewis ók frábæra keppni í dag. Þetta var klárlega skref fram á við. Þetta var ekki slæmur dagur fyrir okkur,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1.

„Svona er kappakstur. Það er ekki annað hægt en að elska þessa íþrótt. Ég get bara reynt að ímynda mér hvað er að eiga sér stað í herbúðum Ferrari núna. Við bjuggumst ekki við að koma frá þessari með svona mikið af stigum en við þiggjum það,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.
„Þetta er ekki tilvalin niðurstaða. Ég sá ekki mikið, ég sá Max og svo sá ég bara Kimi koma inn í hliðina á mér. Mér þykir leitt að við getum ekki sýnt hraðann sem við töldum okkur hafa,“ sagði Sebastian Vettel á Ferrari eftir keppnina.
„Ég held að aðstæður hafi ekki haft neitt með atvikið í ræsingunni að gera. Ég hefði ekki geta gert neitt til að breyta niðurstöðunni nema að eiga slaka ræsingu. Það er ekki mitt hlutverk,“ sagði Kimi Raikkonen á Ferrari eftir keppnina.