Sjúklingum og fyrirburum komið í öruggt skjól vegna sprengju Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. september 2017 17:51 Frá aðgerðum í Frankfurt í dag. Vísir/afp
Viðbragðsaðilar eru nú byrjaðir að rýma sjúkrahús í þýsku borginni Frankfurt vegna sprengju úr seinna stríði sem fannst í miðborginni á þriðjudag. Sprengjan verður sprengd undir eftirliti sérfræðinga á morgun. BBC greinir frá. Yfir hundrað sjúklingar hafa verið fluttir á brott af tveimur spítölum í Frankfurt en þeirra á meðal eru fyrirburar og sjúklingar á gjörgæslu. Þá verða 500 fluttir af dvalarheimilum snemma í fyrramálið. Til stendur að flytja 65 þúsund manns úr Frankfurt á morgun eftir að sprengjan, sem er úr seinna stríði, fannst við jarðvegsvinnu á Wismarer-götu, skammt frá Goethe-háskólanum á þriðjudag.Sjá einnig: Flytja 60 þúsund manns úr Frankfurt Sprengjan verður sprengd á morgun undir eftirliti sérfræðinga en búist er við því að aðgerðir vegna hennar taki að minnsta kosti hálfan sólarhring. Um er að ræða stærstu skipulögðu brottflutninga á fólki í Þýskalandi síðan í seinni heimsstyrjöldinni en talsmenn lögreglu segja að hver sá sem neiti að fara verði handtekinn. Sprengjan er bresk og af gerðinni HC 4000 en hún er um 1,4 tonn að þyngd. Lögreglan vaktar sprengjuna allan sólarhringinn, þrátt fyrir að hún telji almenningi ekki stafa mikil hætta af henni.
Tengdar fréttir Flytja 60 þúsund manns úr Frankfurt Sprengja úr seinna stríði fannst í miðborg Frankfurt á þriðjudag. 31. ágúst 2017 07:25 Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Fleiri fréttir Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða í Michigan Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Sjá meira
Flytja 60 þúsund manns úr Frankfurt Sprengja úr seinna stríði fannst í miðborg Frankfurt á þriðjudag. 31. ágúst 2017 07:25